Tekinn tali
Á Nýja Sjálandi lítur enginn tvisvar á mann þó labbað væri út í búð á náttförunum
Hera Hjartardóttir söngkona er löngu orðin landsfræg fyrir tónlist sína, söng og aðlaðandi framkomu. Hún var fulltrúi Íslands í vegavinnutónleikunumsem haldnir voru í Nýheimum 2.mars. Hera tók því vel að lofa okkur á hornafjordur.is að vita svolítið meira um hana sjálfa og að gömlum íslenskum sið var fyrsta spurningin: Hvaðan ertu?
Foreldrar mínir bjuggu fyrst í Reykjavík en svo fluttum við til Nýja Sjálands þegar ég var 10 ára. Fyrst skruppum við þangað í stutt frí sem varð að 10 mánuðum og þegar við vorum komin heim aftur þráðum við mest að komast þangað aftur. Það var svo bara ákveðið að flytja út, búslóðinni pakkað og við fluttum til Nýja Sjálands. Það var mikið fyrirtæki að flytja þessa löngu leið og bara flugferðin tekur 24 tíma.
Hvernig er að eiga heima á Nýja Sjálandi?
Það er mjög gott. Ég á heima í Christchurch, stæðstu borginni á suðureyjunni. Þar er rosalega rólegt og góð stemning, alveg yndisleg. Þar er hlýrra en hér og blárri himinn en þar eru engin norðurljós – það er eitthvað sem ég sakna meðal annars, segir Hera og brosir.
Hvað finnst þér helst vanta af því sem þú hefur hér?
Ja- SS pylsur, mér finnst þær æðislega góðar líka íslenska nammið og svo sprellið í fólkinu, það er dálítið mikið öðruvísi en heima. Það er mikill munur á fólkinu í þessum löndum, íslendingar gera svo rosalega mikið í einu og eru svo duglegir. Úti er svona meira sveitó allt rólegra og lífsgæða kapphlaupið er ekki eins mikið og fólkið er meira afslappað. Það er svo mikil tíska á Íslandi, á Nýja Sjálandi lítur enginn tvisvar á mann þó labbað væri út í búð á náttförunum, það er ekkert mál – mér finnst svo þægilegt að geta það.
Kemurðu oft til Íslands?
Ég hef komið fjórum sinnum, fyrst var ég í fjóra mánuði að vinna í banka í sumarfríinu mínu. Það er svo gott að koma hingað heim og hitta afa mína og ömmur sem búa í Reykjavík og Hafnarfirði. Ég læri líka alltaf ný slanguryrði sem eru í tísku hér og hafa bætst við frá síðustu heimsókn og smita svo pabba og mömmu með málfarinu þegar ég kem heim.
Hvað finnst þér mest gaman að gera fyrir utan að syngja og spila?
Mér finnst rosalega gaman að föndra, teikna, mála og sauma. Ég mála myndir og föt og hef gaman af að búa til hluti. Ég sauma mikið af fötum á mig, prófa mig áfram og það gengur bara vel.
Hvernig er um jólin hjá ykkur?
Það er allt öðru vísi en hér. Við byrjum morguninn með því að fá okkur ávaxtasafa úti í garði, þá er heitasti tími ársins. Við veljum fallegt tré í garðinum til að skreyta og auðvitað erum við með jólatré inni. Á aðfangadagskvöld höldum við í íslenskar hefðir og borðum íslenskan mat, hangikjöt, hákarl og þess háttar góðgæti. Það er ekki nærri því gert eins mikið gert í sambandi við jólin heima eins og hér, þar eru plaköt með jólasveini sem er á stuttbuxum og á seglbretti, sá þætti nú ekki jólalegur hér. það er lítið um seríuskreytingar og þar verður ekki eins dimmt og hér. Flugeldar eru alveg bannaðir og ekkert slíkt er þar á gamlárskvöld , það er mikið skemmtilegra að vera á Íslandi um áramótin.
Mundir þú vilja eiga heima á Íslandi?
Ég er ekki viss, helst vildi ég eiga góðan stað bæði heima og hér en allavega vil ég vera hjá fjölskyldunni minni. Ég hef tvisvar farið hringferð um Ísland og er búin að sjá mikið af landinu. Fallegast er hér um hávetur þegar allt er fullt af snjó og eins er svo fallegt þegar hásumar er. Það eru svo margir staðir fallegir en Jökulsárlón er toppurinn, það er alveg frábært. Nú er að koma vetur heima og ég ætla að vera þar næstu jól, ég er búin að vera tvö jól í burtu og sumarið 2005 kem ég aftur til Íslands.
Hvenær byrjaði tónlistaráhuginn hjá þér?
Ég byrjaði að spila á gítar þegar ég var átta ára, byrjaði í klassík í tónlistarskólanum áður en við fluttum út og svo fór ég að semja ljóð.Ég byrjaði að koma fram á börum og lesa þau upp svo samdi ég lög við ljóðin. Ætli ég hafi ekki byrjað að syngja þegar ég var lítil, ég man ekki eftir mér öðruvísi.
Svona í lokin, hvað er framundan hjá þér?
Þegar vegavinnu tónleikunum er lokið á Ítalíu og Bretlandi kem ég aftur til Íslands, verð hér í fjóra daga, pakka niður í töskur mínar og flýg heim til Nýja Sjálands.
Ég ætla svo að halda áfram að semja og spila tónlist hvar sem er í heiminum.
Við þökkum Heru fyrir spjallið og óskum henni alls hins besta.




