Tekinn tali
Ég hef alltaf verið veiðimaður
Sá fyrsti sem tekinn er tali á nýju ári er Björn Arnarson frá Reynivöllum í Suðursveit nú safnvörður hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Björn er manna fróðastur um fugla og því var fyrsta spurningin: Hvenær fékkstu áhuga fyrir fuglum og fuglaskoðun? “Ég held að það hafi byrjað strax þegar ég var smá gutti eða frá því ég man fyrst eftir, við vorum í nágrenni við þá Kvískerjabræður og svo var Magnús Magnússon kvikmyndagerðarmaður oft heima og hann var að fylgjast með fuglum og allt þetta smitaði vel út frá sér”.
“Ég fór mikið í skoðunarferðir með Kvískerjabræðrum og eins ef maður sá fugl sem ekki þekktist var hringt í Hálfdán á Kvískerjum sem annað hvort greindi fuglinn í símanum eða kom. Þarna í sveitinni er alveg kjörið svæði til náttúru og fuglaskoðunar eins og reyndar allt Suðausturland”. Fyrstu samfelldu dagbækurnar sem Björn hélt um fuglaskoðun eru frá árinu 1977 þegar hann var 15 ára.
Kona Björns er Ragnheiður Sigríður Gestsdóttir frá Hólmavík og eiga þau þrjú börn.
“Við bjuggum fyrst í tvö ár á Hólmavík en þar var ekki nógu gott að vera alltof mikill snjór og alltof lítið af fuglum” sagði Björn og skellihlær, “svo fluttum við í Reynivelli. Þar vorum við í tæpt ár áður en við fórum hingað á Höfn. Fyrstu árin mín hér var ég til sjós með Páli Dagbjarts og líkaði vel ég kunni alltaf vel við mig á sjónum og hann togar alltaf í mig”.
Hvenær hættirðu á sjónum? “Ég byrjaði hjá byggðasafninu 1997 og er þar enn. Þetta er fjölbreytt og skemmtilegt starf sem m.a. felst í að safna munum, skrá þá og lagfæra. Það er margt merkilegt sem leynist víða í geymslum og á háaloftum og fólk vill gjarnan láta á safnið. Mest gaman er að skoða gömlu hlutina á Kvískerjum, þar er óhemjumikið til af allskonar dóti sem allt er skráð og merkt m.a.hlutir úr skipströndum liðinna ára. Öll svona söfn skipta miklu fyrir ferðaþjónustu á staðnum og hér hefur aðsóknin aukist með hverju ári”.
Hefurðu fleiri áhugamál en fuglaskoðun? “Já ég hef alltaf verið veiðimaður og fer á gæsa-rjúpna og svartfuglsveiðar og það samrýmist vel fuglaáhuganum svo hefur allskonar söfnun loðað við mig gegnum tíðina”.
Uppáhaldssafn Björns er frímerkjasafn sem hann byrjaði á þegar hann var smástrákur.
Nú er sagt að stimplun bréfa sé bölvun frímerkjasafnara þar sem mikill hluti bréfa er ekki lengur frímerktur. “Ég hef safnað stimpluðum bréfum frá póststöðvum og bréfhirðingum víða af landinu sérstaklega héðan úr sýslunni þar sem voru áður fyrr 23 slíkir staðir allt frá árinu 1873 og ég stefni á að halda sýningu á þessu” segir Björn en ekki hefur verið ákveðið hvenær það verður..
Í vetur hefur Björn fært fiðruðum vinum sínum mat í Einarslund og segir hann að þeir mæti vel í matinn en þar eru söngþrestir, gráþrestir,svartþrestir og glóbrystingur. Á nýjársdag sá Björn keldusvín og einnig sönglævirkja.
Við þökkum Birni fyrir spjallið.




