Tekinn tali
Jólaseríurnar fóru að koma upp úr 1960.
Gunnar Hermannsson er Hornfirðingur í húð og hár og átti hann heima í Hlíðarenda ásamt foreldrum sínum og fjórum systkinum. Þó mikið sé að gera hjá honum í jólaösinni í Byggingarvörudeild KASK sem hann stýrir þá gaf hann sér tíma í smá spjall. Hvernig var jólaundirbúningurinn þegar þú varst smástrákur hér á Höfn? “Það var afskaplega ólíkt því sem er í dag” segir Gunnar sem er fæddur 1942 “það var ekki þessi voðalega mikla lýsing eins og nú er orðið. Það hefur líklega verið um 1960 að jólaseríur fóru að koma í glugga hér og síðan hefur þeim fjölgað jafnt og þétt. Fólk lifði svo allt öðruvísi þá en nú og ég held að tilhlökkunin til jólanna hafi ekki verið minni.”
Hvenær byrjaði þessi venjulegi undirbúningur? “Í byrjun desember, þá fór mamma að sauma jólafötin á okkur systkinin, allt var búið til og saumað heima og ætli fermingarfötin mín hafi ekki verið fyrstu búðarfötin sem ég fékk. Jólabaksturinn og jólatiltektin hefur kannski ekki verið svo frábrugðin því sem gerist í dag en það var meiri vinna kring um það.”
Hverjar voru algengustu jólagjafirnar þegar þú varst lítill því líklega hafa þær ekki verið eins ríkmannlegar og gerist í dag? “Algengast var eitthvað sem prjónað hafði verið eða saumað á mann og svo voru spilin alltaf vinsæl og mikið notuð. það var alltaf mikil tilhlökkun að opna pakkana og sérstaklega man ég eftir því þegar við fengum Matador spilið, það var mikið spilað um þau jólin.“
Hvernig er jólaundirbúningurinn hjá þér núna? “Ja-það er nú það, nú er maður að vinna fram á síðustu stundu, það er stóra breytingin frá því sem áður var.Þegar ég var krakki höfðu menn hér ekki vinnu frá því sláturhúsið hætti á haustin og þar til vetrarvertíð byrjaði eftir áramót, það var ekki fyrr en upp úr 1950 að pabbi hafði vinnu allt árið. Það bjargaði fólki að nær allir hér voru með kýr og kindur og höfðu nægan mat og svo var fullt af körlum sem stunduðu fjörðinn og höfðu silung mest allt árið.”
Hvað er í jólamatinn hjá ykkur? “Hamborgarhryggur á aðfangadagskvöld og hangikjöt á jóladag, við vorum alltaf með gæs í jólamatinn þar til fyrir þrem árum að við skiptum yfir í svínið.” Að lokum sendir Gunnar Hornfirðingum bestu jólakveðjur með ósk um bjarta framtíð
Við þökkum Gunnari spjallið




