Vilborg Einarsdóttir ljósmóðir á Höfn, sem flestir þekkja best sem Boggu ljósu, á að baki farsælan starfsferil sem ljósmóðir einnig vann hún lengi á heilsugæslustöðinni þau störf sem hjúkrunarfræðingar vinna núna ásamt mæðra og ungbarnaeftirliti. Vilborg hætti störfum 2001 og helgar sig núna eiginmanninum Helga Hálfdánarsyni og fjölskyldunni allri. Vilborg tók vel í að svara nokkrum spurningum um hvaðan hún væri, um starf hennar og af hverju hún hafi kosið sér þetta að lífsstarfi.
Lesa meira