Ríki Vatnajökuls - Létt grín
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
Grunsamlegt „Svavarsverk“ til sölu
Þrír bláir, þrír grænir og einn rauður
Varð í fyrsta sæti á FireBootCamp á Florida
      <description>Jón Stefán Friðriksson hjá Slökkvitækjaþjónustu Hornafjarðar hefur nú verði skráður á spjöld sögunnar eftir að hann vann stórkostlegan sigur á Fire-Bootcamp móti sem haldið var á Florida í síðustu viku.</description>
Pálma verslunarstjóra Nettó boðinn auglýsingasamningur
Fjöldi frægra gesta á þjóðarkvöldi Kvennakórsins
      <description>Eins og allir ættu að hafa orðið varir við hefur verið mikið að gera hjá kvennakórskonum undanfarna daga í að undirbúa komu frægra gesta til Hornafjarðar. 
Heyrst hefur að einkaþota John Travolta muni lenda á Hornafjarðarflugvelli kl 17 á fimmtudaginn. Þar af leiðandi verður mjög mikil öryggisgæsla á leiðinni frá flugvellinum að Hótel Höfn þar sem tekin hefur verið frá efsta hæðin undir hann og hans fylgdarlið. Þess vegna eru Hornfirðingar beðnir um að halda sig innandyra eða þá í hliðargötum á meðan bílalestin með Travolta og hans fólk fer framhjá. Sést hefur til Gísla á Hótelinu vera að æfa Travolta sporin og er það mál manna að þetta sé bara ansi gott hjá honum!</description>
Fólk þegar farið að streyma á þorrablót.
      <description>Margir ráku upp stór augu þegar þeir sáu þrjá húsbíla á planinu við 11-11 í Miðbæ í gærkvöldi því það er ekki hægt að segja að það sé beint ferðamannatími. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þarna voru á ferð brott fluttir Hornfirðingar sem voru hingað komnir til að fara á þorrablót Hafnarbúa sem verður haldið í Íþróttahúsinu næstu helgi. "Við ætlum sko ekki að missa af þessu ", sagði Sigga Jóns konan hans Gunna í Holti sem er ættuð úr Lóninu í viðtali við upplýsingafulltrúa þorrablótsnefndar, "Nefndin hefur valið frábæra hljómsveit og er varla hægt að gera það betur enda höfum frétt að nefndin í ár sé alveg stórkostleg, trúlega sú besta frá upphafi.</description>
Undarlegur fiskur veiðist í Þveitinni
      <description>Það er ekki á hverjum degi að hægt er að segja "Fékk þann stóra" en það gat Emil Þorsteinsson stóri bróðir Ara Þorsteinssonar hjá Frumkvöðlasetrinu, báðir úr Hagatúninu, þegar Emil ásamt félaga sínum frá Danmörku veiddu furðufisk í Þveit í Nesjum. Við reiknuðum með því að veiða einhverja titti en á þessu áttum við aldrei von segir Emil stoltur. Við þurftum að berjast við ferlíkið í þrjá tíma og endaði baráttan loksins þegar hann var farinn að þreytast, við óðum út í Þveitina, mér tókst að ná hálstaki á fisknum stóra og kyrkja hann. Ég hélt að hann væri dauður þegar við drógum hann í land sigri hrósandi, létum taka af okkur mynd en viti menn hann tók rosalegan kipp, þeytti okkur til hliðar og slapp frá okkur</description>
Hver treystir sér í ógeðsdrykkinn?
      <description>Sveppi, Auddi og Pétur, strákarnir á Stöð 2 eru á Höfn ásamt tökuliði vegna upptöku á þætti sem sýndur verður miðvikudaginn 20. apríl n.k. Þeir vilja fá sjálfboðaliða í upptökuna og sem fram fer í Sindrabæ kl.15:00 í húsnæði Þrykkjunnar. Sveppi sem hefur verið í frí síðustu þætti vildi að sjálfsögðu ekki missa af þessu tækifæri og er hingað kominn með félögunum. Að sögn Guðmundar Péturssonar upptökustjóra Stöðvar 2 þá er verið að leita að hressu fólki sem er ófeimið við að koma fram í sjónvarpi og er til í að drekka ógeðsdrykkinn. Þeir sem eru nógu hugaðir fá gefins Erikson Sony K500 GSM síma fyrir þátttökuna. Strákarnir skemmta áhorfendum Stöðvar 2 fjögur kvöld vikunnar með ýmsum uppátækjum og að þessu sinni leita þeir út fyrir höfuðborgarsvæðið eftir efni og nýjum andlitum.</description>
Sagafilm gefur 25 miða á frumsýningu Batman begins á Hótel Höfn
      <description>Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær þá stendur til að heims-frumsýna kvikmyndina Batman begins í Háskólabíó á næstunni og af því tilefni munu helstu leikarar myndarinnar mæta til landsins og verða viðstaddir frumsýninguna. Meðal þeirra verða Michael Caine, Liam Neeson, Morgan Freeman, Gary Oldman, Ken Watanabe, Katie Holmes og Rutger Hauer. Sem sagt, magnað leikaralið. Eins og alþjóð veit þá fóru tökur á kvikmyndinni fram í Öræfum og af því tilefni hefur Sagafilm sem sá um framkvæmd upptökunnar fyrir Warner Bros hér á landi ákveðið af því tilefni að gefa Hornfirðingum 25 miða á frumsýningu myndarinnar í Háskólabíó og fylgir flugfar til Reykjavíkur með. Þeir heppnu fá einnig að mæta í frumsýningarpartí sem fer fram eftir frumsýninguna.</description>
      <alt>Batman begins</alt>
Vestrahorn hrynur eftir sprengingu í Almannaskarði
      <description>Um klukkan níu í morgun heyrðist gífurleg sprenging frá Almannaskarði, jörðin nötraði og í framhaldi af því heyrðust miklir skruðningar í nánasta umhverfi við Höfn. Þegar skruðningarnir hættu og mönnum varð litið í áttina að Almannskarði sást þar mikill rykmökkur sem umlukti Vestrahornið eins og óveðursský. Þegar rykmökkurinn settist blasti við ótrúleg sjón, Vestrahorn hafði hrunið og eftir stóð fjall sem enginn kannaðist við. Samkvæmt upplýsingum frá norðmanninum Per Blast sem er einn af framkvæmdaraðilum við göngin undir Almannaskarð var verið að nota nýja tegund af sprengiefni sem er um 1000 stinnum öflugra en það sem venjulega er notað.</description>
Leikarinn Brad Pitt á Humarhátíð
      <description>Þeir sem voru staddir á hátíðarsvæðinu niður við bryggju í morgun brá heldur í brún þegar leikarinn og Hollywood stjarnan Brad Pitt birtist á svæðinu, hann mætti þangað í fylgd þeirra Gísla og Óðins frá Hótel Höfn en þeir voru að kynna fyrir honum hátíðarsvæðið. Það að ég og félagar mínir séum staddur hér þessa helgi er tilviljun því þegar að við ákváðum að fara til Íslands og skoða Jökulsárlón og fara upp á þennan stóra jökul vissum við ekki af þessari hátíð humarsins á Höfn sagði leikarinn þegar fréttamenn vefsins hittu hann við Hleinina niður á bryggju. Eiginkona leikarans Jennifer Anniston mun ekki vera með í þessari ferð sökum þess að hún er upptekin við tökur í Nýju Mexico á nýjustu mynd hennar “It takes 3 for tango”. Leikarinn og fylgdarlið hans hafa leigt einbýlishús hér á Höfn en af öryggisástæðum þá má ekki gefa upp hvar á Hafnarbrautinni leikarinn gistir.</description>
Hornfirðingur í hlutverki 007
      <description>Það er ekki á hverjum degi sem íslendingur er kallaður til Hollywood til að taka að sér staðgenglahlutverk fyrir James Bond. “Þetta hófst allt með hringingu sem ég fékk fyrr í vetur frá vini mínum Patrik Penny frá Metro-Goldwin-Mayers studios sem ég kynntist þegar verið var að taka upp Die Anoter Day á Jökulsárlóni” sagði Magnús J. Magnússon sem betur er þekktur á Höfn sem Maggi J kennari. “Patrik spurði mig hvort ég hefði áhuga á að taka að mér staðgenglahlutverk fyrir Piers Brosnan, en ég hélt að maðurinn væri að grínast og sagði auðvitað geri ég það, það var ekki fyrr en ég fékk bréf frá stúdióinu ásamt flugmiða í síðustu viku þá vissi ég að þetta var ekkert grín. Ég mun halda utan í næstu viku og ganga beint inn í tökur á nýjustu mynd James Bond “Bond 21”.</description>
Ofvaxinn skúmur við Jökulsárlón
      <description>Hann er daglegur gestur á Jökulsárlóni, Dabbi kóngur eins og skúmurinn er nefndur af starfsmönnum hefur haft sumardvöl við Jökulsárlón undanfarin 10 ár. Vænghaf hans er um 3,5 metrar og er áætlað að hann vegi um 70 kíló. Skúmurinn þykir ofvaxinn og vekur mikla athygli við Lónið, en þó eru það sumir sem taka til fótanna þegar Dabbi nálgast þjónustuskálann. Silvía Schucraft sem er leiðsögumaður á Jökulsárlóni hefur séð um að gefa fuglinum sérstakt fæði sem á rætur að rekja til heimabæjar hennar sem er í Heidelberg í Þýskalandi. Þessi fæðisblanda er talin stuðla að þessum ofvexti. Því miður fæst ekki uppgefið hver blandan í ofurfæðinu er en þó er vitað að fiskur úr lóninu og jöklamús er notað í uppskriftina og hafi gert hana enn öflugri.</description>
Lamborgini Countach á Hornafirði
      <description>Það var fögur sjón sem blasti við fólki upp við Ekru í dag. Á bílastæðinu fyrir utan húsið stóð þessi glæsilegi Lamborgini Countach, bíll sem við sjáum ekki oft á götum Íslands. Eigandi bílsins eru hjónin John Kerry forsetaframbjóðandi í USA og Teresa Heinz Kerry. Þau sögðust hafa komið til landsins með Norrænu og samkvæmt upplýsingum sem þau höfðu fengið erlendis átti ekki að vera nokkurt mál að ferðast á svona bíl á Íslandi, en annað hefur nú komið á daginn sagði John. Við vorum í tvo daga að keyra hingað frá Seyðisfirði og nú erum við bara búin að fá nóg. Við erum búin að panta bíl til að flytja djásnið okkar til Seyðisfjarðar og höldum af landi brott með næstu ferð. Svo held ég að þið Íslendingar ættuð að láta athuga vegakerfið ykkar, það er bara hlægilegt sagði Teresa og greinilegt var á þeim hjónum að þeim var allt annað en hlátur í huga.</description>
Batman lentur
      <description>Laust upp úr klukkan tvö í dag heyrðust miklar drunur yfir miðbæ Hornafjarðar. Þegar betur var að gáð kom í ljós að þyrla á vegum framleiðenda Batmanmyndarinnar, var þarna á ferð. Flugstjóri þyrlunnar Christian Caine sagðist hafa fengið rangar upplýsingar frá sínum yfirboðurum um hvar hann ætti að lenda og hann hefði talið að þetta þorp hefði verið byggt fyrir kvikmyndatökuna. Honum var vinsamlegast bent á það af lögreglunni að fljúga þyrlunni að þyrlupallinum við heilsugæslustöðina og koma þessu léttklædda fólki sem var með honum í þyrlunni á hótelið þar sem hópurinn gistir næstu dagana.</description>
Lengi lifir í gömlum glæðum
      <description>Kraftaverkin gerast enn! Í dag varð ljóst að hinn magnaði markmaður David Seaman sem gerði garðinn frægan með Arsenal og enska landsliðinu mun standa á milli stanganna hjá Sindra á komandi sumri. Tildrög málsins eru þau að stuðningsmannaklúbbur Arsenal á Hornafirði vildi heiðra gömlu hetjuna sína við lok ferils hans og höfðu samband við kappann. Eitthvað voru menn að grínast við Seaman og bjóða honum markmannsstöðu hjá Sindra. Öllum að óvörum þá tók Seaman vel í þessa hugmynd og í framhaldinu kom hann til Hornafjarðar í gær og skrifar  undir eins árs samning við félagið seinnipartinn í dag.</description>
      <alt>Seaman</alt>
Forláta stóll úr Titanic á markaði á Hornafirði
      <description>Hverjum skildi hafa dottið í hug að þilfars-stóll (Deck Chair) úr Farþegaskipinu Titanic skildi enda á markaði á Hornafirði. Titanic sem fórst í jónfrúarferð sinni frá Bretlandi til Bandaríkjanna árið 1912 er það sigldi á borgarísjaka og sökk á nokkrum tímum.  Eigendur stólsins Ari Þorsteinsson og María Gísladóttir keyptu stólinn í Kanada þar sem þau bjuggu áður en þau flutt til Hafnar. Fyrri eigandi stólsins John McChair var sonur stýrimanns sem var á einu af skipunum sem björguðu fólki úr sjónum ásamt braki sem þar flaut upp og mun stýrimaðurinn hafa tekið stólinn með sér heim.</description>
Jólasveinarnir halda með Sindra!
      <description>Það var ósköp gott að komast hingað í kofann eftir annasama nótt sagði Stekkjastaur, en s.l. nótt kom einmitt fyrsti jólasveinninn til byggða. Mér finnst ósköp gott að setjast niður með gítarinn og taka nokkur vel valinn jólalög þegar þessu árlega næturrölti lýkur. Annars er meira en nóg að gera hjá okkur bræðrunum á þessum árstíma. Giljagaur er til að mynda að búa sig út fyrir næst nótt og svo komum við bræðurnir einn af öðrum til jóla.</description>
Leikarinn Richard Gere í helgarreisu
      <description>Óvæntur gestur sást á göngu um götur Hafnar í gær. Þar var á ferðinni leikarinn frægi Richard Gere sem hingað var kominn í stutta afslöppunarferð frá erli stórborganna. Í stuttu spjalli sagði Richard að hann ætlaði að hafa það bara rólegt um helgina og halda utan á mánudag. Ég ætla samt að kíkja á skotæfingu hjá skotfélaginu ykkar á laugardaginn og má maður víst alls ekki missa af  því þegar kveikt verður á jólatrénu á sunnudag.</description>
Gunnar Ingi til Liverpool
      <description>Houllier hringdi í mig fyrir tveim vikum síðan og falaðist eftir kröftum mínum, hann sagðist vera að leita eftir gömlum reynslubolta eins og Gary McAllister var á sínum tíma. Ég tók mér nokkra daga til að hugsa málið en ákvað svo að slá til. Ég mun byrja að leika með liðinu í janúar og líst bara nokkuð vel á það sem ég hef séð hingað til. Ég vona að reynsla mín nýtist liðinu til að komast aftur á sigurbraut enda á þetta stórveldi ekki að vera að dúllast um miðja deild.</description>
Óvenjuleg veiði
      <description>Ég var á rölti á Endalausadal og hafði byssuna með mér ef á þyrfti að halda. Þegar ég var kominn töluvert inn dalinn sá hóp af dýrum sem ég hélt að væru hreindýr. En þegar ég kom nær hópnum sá ég að þetta voru ekki hin hefðbundnu hreindýr heldur einhverjir undanvillingar sem ég kann ekki skil á. Og þar sem ég vissi að fáir mundu trúa sögu minni þá ákvað ég að skjóta eitt dýrið og nota sem sönnunargagn sagði Grétar Vilbergs stórveiðimaður á heimsvísu um þessa skemmtilegu gönguferð.</description>
Roy Keane á Hótel Höfn
      <description>Fótboltahetjan Roy Keane, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United kom í óvænta heimsókn til Hornafjarðar á dögunum. Ástæðan fyrir komu kappans var óljós í fyrstu en síðar kom í ljós að hann vildi gera samning við eigendur Hótels Hafnar um dyravörslu á hótelinu. Ég frétti af gamalli fótboltahetju sem stundar útkastarastarf á hótelinu og ég sá strax að þetta væri góð leið fyrir mig til að fá útrás fyrir uppsafnaða reiði og pirring. Ég hef varla farið í eina einustu tæklingu undanfarna mánuði og það er virkilega farið að pirra mig sagði kappinn í stuttu spjalli.</description>
Tom Cruise á Jöklasýningu
      <description>Hann var ósköp indæll og sýndi safninu mikinn áhuga sagði Guðrún Ingimundardóttir starfsmaður Jöklasafnsins um óvænta komu Tom Cruise á safnið. Auðvitað varð ég hissa þegar hringt var í mig og ég spurð hvort möguleiki væri á að leikarinn fengi að skoða safnið. Í fyrstu hélt ég að þetta væri eitthvað grín, en sannfærðist síðan um að svo var ekki.  Hann kom svo hingað á mánudaginn ásamt fylgdarliði og var hreinlega heillaður af safninu sem og Hornafirði.</description>
Siv fór illa með mig
      <description>Ég var búin að leggja mikið á mig við leit að réttu græjunum til að nota við rjúpnaveiðar í haust sagði Örn Þorbjörnsson “sportveiðimaður”. Þessi friðun á fuglinum kom eins og köld vatnsgusa framan í mig sem og aðra “sportveiðimenn”. Ég hringdi strax í Siv og gerði henni grein fyrir því hvað ég væri búin að eyða miklum tíma og orku í  að undirbúa mig undir haustið, búin að vera í líkamsrækt og alles. En hún sagðist ekki hvika frá ákvörðun sinni.</description>
Veiddi 28 gæsir en Arnold Schwarzenegger enga
      <description>Kvikmyndaleikarinn og ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger var staddur á Hornafirði í vikunni og var tilgangur ferðarinnar að slappa af eftir harða og sigursæla kosningabaráttu. Í stað þess að hafa það náðugt á Hótel Höfn vildi leikarinn fara á íslenskar gæsaveiðar eins og hann orðaði það. Það voru þeir veiðimennirnir Haukur á Olís og Siggi Guðna lögga sem fengnir voru til að gæta hans og vera sérlegir leiðsögumenn á veiðunum.</description>
Hlakkar mikið til að sjá mörgæsirnar
      <description>Sendinefnd sem tók þátt í ráðstefnunni Global Fishing Industry for Small Communities sem var haldin á vegum Iceland-USA Work Association á Hilton Hotel í Washington brá heldur í brún þegar George Bush mætti þar óvænt og flutt þar ræðu. Bush sem staddur var á hótelinu á vegum ameríska þingsins ákvað að halda ræðuna þegar að hann frétti að þar væru mættir fulltrúar alla leið frá Hornafirði. Nefndin var skipuð fulltrúum trillusjómanna en í för með þeim var Albert Eymundsson bæjarstjóri sem fulltrúi sveitarfélagsins.</description>