Forláta stóll úr Titanic á markaði á Hornafirði
Hverjum skildi hafa dottið í hug að þilfars-stóll (Deck Chair) úr Farþegaskipinu Titanic skildi enda á markaði á Hornafirði. Titanic sem fórst í jónfrúarferð sinni frá Bretlandi til Bandaríkjanna árið 1912 er það sigldi á borgarísjaka og sökk á nokkrum tímum. Eigendur stólsins Ari Þorsteinsson og María Gísladóttir keyptu stólinn í Kanada þar sem þau bjuggu áður en þau flutt til Hafnar. Fyrri eigandi stólsins John McChair var sonur stýrimanns sem var á einu af skipunum sem björguðu fólki úr sjónum ásamt braki sem þar flaut upp og mun stýrimaðurinn hafa tekið stólinn með sér heim.
Ari segir að eftir að þeim áskotnaðist stóllinn á skransölu í Kanada og þar sem hann hafi endað því fyrri eigandi vissi ekki um uppruna stólsins. Ari segir að hann hafi látið rannsaka stólinn og hið rétta hafi komið í ljós. Þetta mun vera annar stóllinn sem til er úr farþegaskipinu en hinn stóllinn er í eigu Maritime Museum of the Atlantic í Nova Scotia.
Þegar hafa borist mjög há tilboð í stólinn eftir að ljóst hvaðan hann var og er nú verið að skoða tilboð frá kvikmyndafyrirtækinu TWENTIETH CENTURY FOX en þeir eru nú að undirbúa gerð Titanic II sem verður framhald þeirri fyrri sem var gerð 1997 og vann til fjölda óskarsverlauna. Markmið framleiðenda myndanna er að nota þá upprunalega hluti sem hægt er að finna úr skipinu í kvikmyndina.




