Létt grín
Stekkjastaur tekur lagið
Stekkjastaur tekur lagið

Jólasveinarnir halda með Sindra!

Það var ósköp gott að komast hingað í kofann eftir annasama nótt sagði Stekkjastaur, en s.l. nótt kom einmitt fyrsti jólasveinninn til byggða. Mér finnst ósköp gott að setjast niður með gítarinn og taka nokkur vel valinn jólalög þegar þessu árlega næturrölti lýkur. Annars er meira en nóg að gera hjá okkur bræðrunum á þessum árstíma. Giljagaur er til að mynda að búa sig út fyrir næst nótt og svo komum við bræðurnir einn af öðrum til jóla.

Eru ekki allir KR-ingar inn við beinið sagði Stekkjastaur þegar hann var spurður um KR treyjuna sem hann var í. Annars er Sindri, lið ykkar Hornfirðinga, okkar lið enda klæðast þeir rauðu og hvítu eins við.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica