Létt grín
Richard Gere á Höfn
Richard Gere á Höfn

Leikarinn Richard Gere í helgarreisu

Óvæntur gestur sást á göngu um götur Hafnar í gær. Þar var á ferðinni leikarinn frægi Richard Gere sem hingað var kominn í stutta afslöppunarferð frá erli stórborganna. Í stuttu spjalli sagði Richard að hann ætlaði að hafa það bara rólegt um helgina og halda utan á mánudag. Ég ætla samt að kíkja á skotæfingu hjá skotfélaginu ykkar á laugardaginn og má maður víst alls ekki missa af því þegar kveikt verður á jólatrénu á sunnudag.

Leikarinn gistir í Árnanesi og segir hann aðstöðuna þar framúrskarandi og hafi hann þegar bent félögum í leikarastéttinni á frábæran stað til að slappa af. Eins og fram hefur komið í fréttum þá er Sveitarfélagið Hornafjörður mjög vinsæll staður til að kvikmynda og berst hróður þess eins og eldur í sinu í Hollywood og eflaust eigum við eftir að sjá fleiri þekkta leikara á götum okkar. Þess má geta að fyrir skemmstu heiðraði ríkisstjórinn Arnold okkur með nærveru sinni.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica