Létt grín
Gunnar Ingi, Houllier og gamla hetjan John Barnes
Gunnar Ingi, Houllier og gamla hetjan John Barnes

Gunnar Ingi til Liverpool

Houllier hringdi í mig fyrir tveim vikum síðan og falaðist eftir kröftum mínum, hann sagðist vera að leita eftir gömlum reynslubolta eins og Gary McAllister var á sínum tíma. Ég tók mér nokkra daga til að hugsa málið en ákvað svo að slá til. Ég mun byrja að leika með liðinu í janúar og líst bara nokkuð vel á það sem ég hef séð hingað til. Ég vona að reynsla mín nýtist liðinu til að komast aftur á sigurbraut enda á þetta stórveldi ekki að vera að dúllast um miðja deild.

Í breskum fjölmiðlum er mikið fjallað um þessi síðustu kaup Houllier og er þar haft eftir honum að Gunnar Ingi sé sá leikmaður sem liðið hafi vantað undanfarna mánuði. Þetta er góð jólagjöf til stuðningsmanna liðsins og nú liggur leiðin upp á við.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica