Létt grín
Grétar stoltur með bráðina
Grétar stoltur með bráðina

Óvenjuleg veiði

Ég var á rölti á Endalausadal og hafði byssuna með mér ef á þyrfti að halda. Þegar ég var kominn töluvert inn dalinn sá hóp af dýrum sem ég hélt að væru hreindýr. En þegar ég kom nær hópnum sá ég að þetta voru ekki hin hefðbundnu hreindýr heldur einhverjir undanvillingar sem ég kann ekki skil á. Og þar sem ég vissi að fáir mundu trúa sögu minni þá ákvað ég að skjóta eitt dýrið og nota sem sönnunargagn sagði Grétar Vilbergs stórveiðimaður á heimsvísu um þessa skemmtilegu gönguferð.

Grétar sagðist ætla að skreppa aftur á Endalausadalinn, ég tek þá félagana með því þeir eru alveg óðir og uppvægir að leika þennan leik eftir mér. En flestir þeirra mundu nú ekki hitta belju þó svo þeir héldu í halann á henni þannig að ég á ekki von á stórveiði í þeirri ferð.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica