Roy Keane á Hótel Höfn
Fótboltahetjan Roy Keane, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United kom í óvænta heimsókn til Hornafjarðar á dögunum. Ástæðan fyrir komu kappans var óljós í fyrstu en síðar kom í ljós að hann vildi gera samning við eigendur Hótels Hafnar um dyravörslu á hótelinu. Ég frétti af gamalli fótboltahetju sem stundar útkastarastarf á hótelinu og ég sá strax að þetta væri góð leið fyrir mig til að fá útrás fyrir uppsafnaða reiði og pirring. Ég hef varla farið í eina einustu tæklingu undanfarna mánuði og það er virkilega farið að pirra mig sagði kappinn í stuttu spjalli.
Þeir Gísli og Óðinn eigendur hótelsins voru mjög ánægðir með áhuga Keane á starfinu og undirrituðu samning við kappann, sem mun mæta til starfa á komandi ári. Aðeins einn aðili hefur líst vanþóknun sinni á þessari ráðningu en það er Alf Inge Haaland sem sagði í viðtali við Aftenposten að hann mundi aldrei stíga fæti inn á Hótel Höfn meðan Keane væri þar að störfum. Fyrir þá sem ekki vita má geta þess að Keane fótbraut Haaland fyrir nokkrum árum í leik í ensku úrvalsdeildinni.




