Veiddi 28 gæsir en Arnold Schwarzenegger enga
Kvikmyndaleikarinn og ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger var staddur á Hornafirði í vikunni og var tilgangur ferðarinnar að slappa af eftir harða og sigursæla kosningabaráttu. Í stað þess að hafa það náðugt á Hótel Höfn vildi leikarinn fara á íslenskar gæsaveiðar eins og hann orðaði það. Það voru þeir veiðimennirnir Haukur á Olís og Siggi Guðna lögga sem fengnir voru til að gæta hans og vera sérlegir leiðsögumenn á veiðunum.
Að sögn Hauks þá skaut hann sjálfur 28 gæsir, Siggi 15 en Arnord enga, hann sagði að leikarinn hefði verið frekar fúll yfir að ná ekki að skjóta neina gæs en eins og aðdáendur hans hafa tekið eftir í bíómyndunum þá missir hann aldrei marks en í þetta skipti hitt hann ofjarl sinn af Júllaættinni.
Leikarinn og ríkisstjórinn hélt utan í einkaþotu sinni frá Hornafjarðarflugvelli í gær ásamt fylgdarliði eftir að hafa farið upp á jökul og notið veðurblíðunnar sem er búin að vera einstök síðustu daga. Arnold kvaddi hornfirðinga með orðunum “I’;ll be back”




