Hlakkar mikið til að sjá mörgæsirnar
Sendinefnd sem tók þátt í ráðstefnunni Global Fishing Industry for Small Communities sem var haldin á vegum Iceland-USA Work Association á Hilton Hotel í Washington brá heldur í brún þegar George Bush mætti þar óvænt og flutt þar ræðu. Bush sem staddur var á hótelinu á vegum ameríska þingsins ákvað að halda ræðuna þegar að hann frétti að þar væru mættir fulltrúar alla leið frá Hornafirði. Nefndin var skipuð fulltrúum trillusjómanna en í för með þeim var Albert Eymundsson bæjarstjóri sem fulltrúi sveitarfélagsins.
Ekki minkaði undrun nefndarmanna þegar Bush mætti óvænt í koktilboð sem haldið var á síðasta degi ráðstefnunnar. Þar átti hann gott spjall við þá Unnstein Guðmundsson trillukarl og Albert um Hornafjörð og samvinnu Bandaríkjanna og Hornafjarðar. Þeim félögum kom á óvart hversu Bush er lítill vexti. Hann virkar stærri í sjónvarpi sagði Albert. Þeir sögðu að Bush hefði talað mikið um hversu Ísland væri fallegt og hvað hann hlakkaði mikið til að sjá mörgæsirnar og íshallirnar eins og voru í Bond. James Bond er minn maður og það er honum að þakka hversu mikið ég veit um Ísland sagði forsetinn m.a. í ræðu sinni. Bush sem sjálfur er kominn af trilluköllum langt aftur í ættir, ráðgerir nú ferð til Hornafjarðar og ætlar hann m.a. að fara upp á jökul, skoða Jökulsárlónið hjá Einari Birni og skella sér í einn túr á skak með Unnsteini.




