Létt grín
Pálmi verslunarstjóri
Pálmi verslunarstjóri

Pálma verslunarstjóra Nettó boðinn auglýsingasamningur

Það er ekki á hverjum degi sem Hornfirðingar eða réttara sagt Nesjamenn eru ráðnir sem fyrirsætur. Verslunarkeðjan Nettó mun á næstunni hefja auglýsingarherferð undir merkjunum "Þú er það sem þú borðar". Í herferðinni er lögð áhersla á að fólk sem ekki hefur tíma til að hreyfa sig mikið, borði hollan og næringarríkan mat og til að sanna mál sitt hefur Nettó ráðið Pálma Guðmundsson verslunarstjóra Nettó á Höfn til að vera andlit herferðarinnar. Pálmi er lýsandi dæmi um mann sem ákvað að borða bara hollan og næringargóðan mat og hefur með því náð sér í toppform. Að sögn Pálma þá fer það mikill tími í vinnuna og hestamennskuna að ekki hefur veri tími til að stunda neinar æfingar og ákvað hann þá að koma sér í form með því að borða hollan mat sem að sjálfsögðu er keyptur í Nettó.

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica