Fólk þegar farið að streyma á þorrablót.
Margir ráku upp stór augu þegar þeir sáu þrjá húsbíla á planinu við 11-11 í Miðbæ í gærkvöldi því það er ekki hægt að segja að það sé beint ferðamannatími. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þarna voru á ferð brott fluttir Hornfirðingar sem voru hingað komnir til að fara á þorrablót Hafnarbúa sem verður haldið í Íþróttahúsinu næstu helgi. "Við ætlum sko ekki að missa af þessu ", sagði Sigga Jóns konan hans Gunna í Holti sem er ættuð úr Lóninu í viðtali við upplýsingafulltrúa þorrablótsnefndar, "Nefndin hefur valið frábæra hljómsveit og er varla hægt að gera það betur enda höfum frétt að nefndin í ár sé alveg stórkostleg, trúlega sú besta frá upphafi.
"Nei við tökum enga sénsa og ætlum að vera fyrst í röðinni þó að við þurfum að bíða í viku, það fer svo vel um okkur hérna í bílunum" sagði Sigga að lokum.




