Létt grín
Emil veiddi fisk
Emil veiddi fisk
Eins og sjá má þá er um að ræða mjög stórann fisk.

Undarlegur fiskur veiðist í Þveitinni

Það er ekki á hverjum degi að hægt er að segja "Fékk þann stóra" en það gat Emil Þorsteinsson stóri bróðir Ara Þorsteinssonar hjá Frumkvöðlasetrinu, báðir úr Hagatúninu, þegar Emil ásamt félaga sínum frá Danmörku veiddu furðufisk í Þveit í Nesjum. Við reiknuðum með því að veiða einhverja titti en á þessu áttum við aldrei von segir Emil stoltur. Við þurftum að berjast við ferlíkið í þrjá tíma og endaði baráttan loksins þegar hann var farinn að þreytast, við óðum út í Þveitina, mér tókst að ná hálstaki á fisknum stóra og kyrkja hann. Ég hélt að hann væri dauður þegar við drógum hann í land sigri hrósandi, létum taka af okkur mynd en viti menn hann tók rosalegan kipp, þeytti okkur til hliðar og slapp frá okkur.

Við erum búnir að reyna að ná honum aftur, nota ýmsa beitu og m.a. Hornfirskan humar en það var sú beita sem ég náði honum á en því miður þá er hann enn á lausu í Þveitinni sagði Emil að lokum. Emil hélt utan til Danmerkur þar sem hann býr ásamt fjölskyldu sinni. Að sögn fiskifræðings sem séð hefur myndina þá fullyrðir hann að hér sé um að ræða styrju, en sá fiskur er með heimkynni í Svarta hafinu. Hrogn fisksins eru afar verðmæt miðað við umfang hans og má leiða líkum að því að verðmæti hrognanna sé tugi miljóna króna.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica