Hver treystir sér í ógeðsdrykkinn?
Sveppi, Auddi og Pétur, strákarnir á Stöð 2 eru á Höfn ásamt tökuliði vegna upptöku á þætti sem sýndur verður miðvikudaginn 20. apríl n.k. Þeir vilja fá sjálfboðaliða í upptökuna og sem fram fer í Sindrabæ kl.15:00 í húsnæði Þrykkjunnar. Sveppi sem hefur verið í frí síðustu þætti vildi að sjálfsögðu ekki missa af þessu tækifæri og er hingað kominn með félögunum. Að sögn Guðmundar Péturssonar upptökustjóra Stöðvar 2 þá er verið að leita að hressu fólki sem er ófeimið við að koma fram í sjónvarpi og er til í að drekka ógeðsdrykkinn. Þeir sem eru nógu hugaðir fá gefins Erikson Sony K500 GSM síma fyrir þátttökuna. Strákarnir skemmta áhorfendum Stöðvar 2 fjögur kvöld vikunnar með ýmsum uppátækjum og að þessu sinni leita þeir út fyrir höfuðborgarsvæðið eftir efni og nýjum andlitum.
Þeir sem eru til í tuskið mæta í Sindrabæ kl.15 í dag. Reiknað er með að upptakan taki um 2 tíma og þeir sem verða valdir til að drekka ógeðsdrykkinn verða eitthvað lengur.




