Létt grín
Batman begins
Batman begins
Batman begins

Sagafilm gefur 25 miða á frumsýningu Batman begins á Hótel Höfn

Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær þá stendur til að heims-frumsýna kvikmyndina Batman begins í Háskólabíó á næstunni og af því tilefni munu helstu leikarar myndarinnar mæta til landsins og verða viðstaddir frumsýninguna. Meðal þeirra verða Michael Caine, Liam Neeson, Morgan Freeman, Gary Oldman, Ken Watanabe, Katie Holmes og Rutger Hauer. Sem sagt, magnað leikaralið. Eins og alþjóð veit þá fóru tökur á kvikmyndinni fram í Öræfum og af því tilefni hefur Sagafilm sem sá um framkvæmd upptökunnar fyrir Warner Bros hér á landi ákveðið af því tilefni að gefa Hornfirðingum 25 miða á frumsýningu myndarinnar í Háskólabíó og fylgir flugfar til Reykjavíkur með. Þeir heppnu fá einnig að mæta í frumsýningarpartí sem fer fram eftir frumsýninguna.

Fulltrúi Sagafilm mun gefa miðana í anddyri Hótels Hafnar í dag kl. 16:00 og á þá við gamla reglan, fyrstir koma fyrstir fá.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica