Vestrahorn hrynur eftir sprengingu í Almannaskarði
Um klukkan níu í morgun heyrðist gífurleg sprenging frá Almannaskarði, jörðin nötraði og í framhaldi af því heyrðust miklir skruðningar í nánasta umhverfi við Höfn. Þegar skruðningarnir hættu og mönnum varð litið í áttina að Almannskarði sást þar mikill rykmökkur sem umlukti Vestrahornið eins og óveðursský. Þegar rykmökkurinn settist blasti við ótrúleg sjón, Vestrahorn hafði hrunið og eftir stóð fjall sem enginn kannaðist við. Samkvæmt upplýsingum frá norðmanninum Per Blast sem er einn af framkvæmdaraðilum við göngin undir Almannaskarð var verið að nota nýja tegund af sprengiefni sem er um 1000 stinnum öflugra en það sem venjulega er notað. Vegna misskilnings var notað sama magn og áður með gamla sprengiefninu sem orsakaði sprengingu sem varð þess valdandi að skjálftahryna fór um fjallið og setti af stað þessi ósköp.
Engum varð meint af þessu en öllum mjög brugðið og flestir starfsmenn ganganna urðu mjög skelkaðir og lá við að þeir þyrftu áfallahjálp. Þessi nýja ásýnd er hreint ótrúleg og margir Hornfiðingar sem hafa litið á þetta fjall sem sitt kennileiti munu eflastu fá tár í augun og mun örugglega taka langan tíma að venjast þessu útsýni. Eflaust þurfa mörgu fyrirtæki sem hafa notað þetta fjall í merkjum sínum (lógó) að breytingar á þeim þ.á.m. er Sveitarfélagið Hornafjörður, Miðbær og Hornafjörður.is




