Leikarinn Brad Pitt á Humarhátíð
Þeir sem voru staddir á hátíðarsvæðinu niður við bryggju í morgun brá heldur í brún þegar leikarinn og Hollywood stjarnan Brad Pitt birtist á svæðinu, hann mætti þangað í fylgd þeirra Gísla og Óðins frá Hótel Höfn en þeir voru að kynna fyrir honum hátíðarsvæðið. Það að ég og félagar mínir séum staddur hér þessa helgi er tilviljun því þegar að við ákváðum að fara til Íslands og skoða Jökulsárlón og fara upp á þennan stóra jökul vissum við ekki af þessari hátíð humarsins á Höfn sagði leikarinn þegar fréttamenn vefsins hittu hann við Hleinina niður á bryggju. Eiginkona leikarans Jennifer Anniston mun ekki vera með í þessari ferð sökum þess að hún er upptekin við tökur í Nýju Mexico á nýjustu mynd hennar “It takes 3 for tango”. Leikarinn og fylgdarlið hans hafa leigt einbýlishús hér á Höfn en af öryggisástæðum þá má ekki gefa upp hvar á Hafnarbrautinni leikarinn gistir.
Ég er ákveðinn í að nota tækifærið og upplifa hátíðina ykkar þar sem ég er á staðnum, en mig hefur alltaf langað að koma hingað eftir að ég heyrði að vinur minn Arnold Schwarzenegger hafi dvalið hér og farið upp á jökul sagði Brad Pitt að lokum.




