Hornfirðingur í hlutverki 007
Það er ekki á hverjum degi sem íslendingur er kallaður til Hollywood til að taka að sér staðgenglahlutverk fyrir James Bond. “Þetta hófst allt með hringingu sem ég fékk fyrr í vetur frá vini mínum Patrik Penny frá Metro-Goldwin-Mayers studios sem ég kynntist þegar verið var að taka upp Die Anoter Day á Jökulsárlóni” sagði Magnús J. Magnússon sem betur er þekktur á Höfn sem Maggi J kennari. “Patrik spurði mig hvort ég hefði áhuga á að taka að mér staðgenglahlutverk fyrir Piers Brosnan, en ég hélt að maðurinn væri að grínast og sagði auðvitað geri ég það, það var ekki fyrr en ég fékk bréf frá stúdióinu ásamt flugmiða í síðustu viku þá vissi ég að þetta var ekkert grín. Ég mun halda utan í næstu viku og ganga beint inn í tökur á nýjustu mynd James Bond “Bond 21”.
Það er frí í skólanum og ég vona að upptökum ljúki áður en skóli hefst að nýju í ágúst ef ekki þá þarf ég að ákveða hvor ég held mig við kennarahlutverkið eða held á framabrautina í kvikmyndaiðnaðinum í Hollywood sagði Magnús að lokum.




