Ofvaxinn skúmur við Jökulsárlón
Hann er daglegur gestur á Jökulsárlóni, Dabbi kóngur eins og skúmurinn er nefndur af starfsmönnum hefur haft sumardvöl við Jökulsárlón undanfarin 10 ár. Vænghaf hans er um 3,5 metrar og er áætlað að hann vegi um 70 kíló. Skúmurinn þykir ofvaxinn og vekur mikla athygli við Lónið, en þó eru það sumir sem taka til fótanna þegar Dabbi nálgast þjónustuskálann. Silvía Schucraft sem er leiðsögumaður á Jökulsárlóni hefur séð um að gefa fuglinum sérstakt fæði sem á rætur að rekja til heimabæjar hennar sem er í Heidelberg í Þýskalandi. Þessi fæðisblanda er talin stuðla að þessum ofvexti. Því miður fæst ekki uppgefið hver blandan í ofurfæðinu er en þó er vitað að fiskur úr lóninu og jöklamús er notað í uppskriftina og hafi gert hana enn öflugri.
Dabbi er eins og aðrir skúmar mjög vanafastur og viðskotaillur, hans tímabil hér er frá mars og fram á haust og ræður hann hér ríkjum og kærir sig kollóttan um brýr og bíla. Hann ver egg sín og unga með kjafti og klóm og guð hjálpi þeim sem koma nálægt varpstað hans.




