Lamborgini Countach á Hornafirði
Það var fögur sjón sem blasti við fólki upp við Ekru í dag. Á bílastæðinu fyrir utan húsið stóð þessi glæsilegi Lamborgini Countach, bíll sem við sjáum ekki oft á götum Íslands. Eigandi bílsins eru hjónin John Kerry forsetaframbjóðandi í USA og Teresa Heinz Kerry. Þau sögðust hafa komið til landsins með Norrænu og samkvæmt upplýsingum sem þau höfðu fengið erlendis átti ekki að vera nokkurt mál að ferðast á svona bíl á Íslandi, en annað hefur nú komið á daginn sagði John. Við vorum í tvo daga að keyra hingað frá Seyðisfirði og nú erum við bara búin að fá nóg. Við erum búin að panta bíl til að flytja djásnið okkar til Seyðisfjarðar og höldum af landi brott með næstu ferð. Svo held ég að þið Íslendingar ættuð að láta athuga vegakerfið ykkar, það er bara hlægilegt sagði Teresa og greinilegt var á þeim hjónum að þeim var allt annað en hlátur í huga.
Við eigum von á flutningabílnum hingað seinnipartinn í dag og ætlum við okkur að bíða hérna á þessu bílaplani þangað til hann kemur sagði John. Ef einhver heimamaður hefur áhuga á að kaupa bílinn þá erum við tilbúin að láta hann fyrir c.a. 70 milljónir sagði Teresa að lokum og afþakkaði um leið að þau hjónin yrðu með á myndinni af bílnum.




