Batman lentur
Laust upp úr klukkan tvö í dag heyrðust miklar drunur yfir miðbæ Hornafjarðar. Þegar betur var að gáð kom í ljós að þyrla á vegum framleiðenda Batmanmyndarinnar, var þarna á ferð. Flugstjóri þyrlunnar Christian Caine sagðist hafa fengið rangar upplýsingar frá sýnum yfirboðurum um hvar hann ætti að lenda og hann hefði talið að þetta þorp hefði verið byggt fyrir kvikmyndatökuna. Honum var vinsamlegast bent á það af lögreglunni að fljúga þyrlunni að þyrlupallinum við heilsugæslustöðina og koma þessu léttklædda fólki sem var með honum í þyrlunni á hótelið þar sem hópurinn gistir næstu dagana.
Kvikmyndagerðafólkinu fannst heldur kalt á Hornafirði í dag og miðað við klæðaburð þess þá er greinilegt að ýmsar upplýsingar sem það hafði fengið í sínu heimalandi stóðust ekki. Til gamans má nefna það að flugstjórinn er bróðir Michael Caine sem fer með hlutverk þjóns Batmanns í myndinni.




