Létt grín
Seaman
David Seaman og Gísli Már í nýju Sindrabúningunum
David Seaman og Gísli Már í nýju Sindrabúningunum

Lengi lifir í gömlum glæðum

Kraftaverkin gerast enn! Í dag varð ljóst að hinn magnaði markmaður David Seaman sem gerði garðinn frægan með Arsenal og enska landsliðinu mun standa á milli stanganna hjá Sindra á komandi sumri. Tildrög málsins eru þau að stuðningsmannaklúbbur Arsenal á Hornafirði vildi heiðra gömlu hetjuna sína við lok ferils hans og höfðu samband við kappann. Eitthvað voru menn að grínast við Seaman og bjóða honum markmannsstöðu hjá Sindra. Öllum að óvörum þá tók Seaman vel í þessa hugmynd og í framhaldinu kom hann til Hornafjarðar í gær og skrifar undir eins árs samning við félagið seinnipartinn í dag.

Það var gaman að þetta skildi ganga svona fljótt og vel fyrir sig sagði Gísli Már Vilhjálmsson, sem var einn af þeim sem komu þessu máli í höfn. Mér brá reyndar talsvert þegar ég hitti Seaman, mér fannst hann alltaf stór og stæðilegur markmaður þegar maður horfði á hann í sjónvarpinu en svo kemur í ljós að hann er töluvert minni en ég. Annað hvort er aldurinn farinn að segja til sín hjá honum eða þá að mörkin á Englandi eru mikli minni en hér sagði Gísli að lokum. Seaman neitaði öllum viðtölum, sagði bara “no comment, no comment” Formaður knd. Sindra Valdemar Einarsson sagði að boðað yrði til blaðamannafundar um helgina og von væri á fjölda blaðamann frá útlöndum.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica