Létt grín
Gísli Disco Fever
Gísli Disco Fever
Gísli Már "Disco Fever" í léttu spori á Hótel Höfn, sannur Travolta aðdáandi.

Fjöldi frægra gesta á þjóðarkvöldi Kvennakórsins

Eins og allir ættu að hafa orðið varir við hefur verið mikið að gera hjá kvennakórskonum undanfarna daga í að undirbúa komu frægra gesta til Hornafjarðar. Heyrst hefur að einkaþota John Travolta muni lenda á Hornafjarðarflugvelli kl 17 á fimmtudaginn. Þar af leiðandi verður mjög mikil öryggisgæsla á leiðinni frá flugvellinum að Hótel Höfn þar sem tekin hefur verið frá efsta hæðin undir hann og hans fylgdarlið. Þess vegna eru Hornfirðingar beðnir um að halda sig innandyra eða þá í hliðargötum á meðan bílalestin með Travolta og hans fólk fer framhjá. Sést hefur til Gísla á Hótelinu vera að æfa Travolta sporin og er það mál manna að þetta sé bara ansi gott hjá honum! Strax frá og með morgundeginum má reikna með hertri öryggisgæslu á Höfn því þá er von á fyrstu gestunum til Hafnar. Óska þeir nafnleyndar að svo stöddu. Komið verður upp öryggishliðum og líkamsleitarstöðvum á hinum ýmsu stöðum bæjarins og vonast kvennakórskonur til þess að íbúar Hornafjarðar sýni þessum tignu gestum skilning og þolinmæði. Sjáumst svo sem flest í Sindrabæ fimmtudagskvöldið 3.júlí kl 19:30.

Forsala aðgöngumiða eru í Tangó og hjá Ingu Kristínu í Sparisjóðnum. Miðaverð er aðeins kr. 3.000.-


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica