Perlur
Dýralíf
Refir og minkar eru útbreiddir í Austur-Skaftafellssýslu. Hagamýs eru einnig útbreiddar en frægt er að um langan aldur voru ekki hagamýs í Öræfum. Hreindýr er víða að finna á svæðinu en þó ekki í Öræfum. Selir eru útbreiddir með ströndum fram og mikil selalátur eru á Skeiðarársandi og Breiðamerkursandi, bæði útsels og landsels. Til skamms tíma voru kópar þessara tegunda veiddir vegna skinnanna.
Hreindýr voru fyrst flutt til Íslands frá Finnmörku í norður Noregi í kjölfar móðuharðindanna seint á átjándu öld en finnast nú aðeins á Suðaustur- og Austurlandi. Þeim fjölgar jafnt og þétt þrátt fyrir auknar veiðiheimildir. Á Suðausturlandi þar sem stutt er á milli háa fjallgarða og strandlengjunnar leita hreindýrin mikið niður á láglendið, sérstaklega á veturna. Þar halda dýrin sig fram að burðartíma, í maí og byrjun júní. Þá halda hjarðirnar upp á hálendið þar sem kýrnar kjósa að bera og nóg er af nýsprottnum fjallagrösum og hreindýramosa. Mögulegt er að rekast á hreindýr nærri byggð yfir sumartímann, en mjög algengt er að sjá þau á láglendi yfir veturinn og oft má sjá þau út um bílgluggann við þjóðveg 1, því er mikilvægt er að aka varlega, einkum eftir að skyggja tekur, þar sem hreindýrin geta stokkið fyrirvaralaust fyrir bílana.
Selir eru orðnir eitt af einkennismerkjum Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi. Þar halda þeir sig í síauknum mæli allt árið um kring þó sérstaklega á vetrum. Jökulsárlónið leggur yfir vetrartímann og er því ekki hægt að sigla á lónin. Þá leggja selirnir þennan griðastað undir sig, enda er það nóg af æti. Silungur, síld og jafnvel lax leita inn í lónið og eru á matseðli selsins. Mikil selalátur eru við ströndina, einkum á Skeiðarársandi. Oft er hægt að sjá seli við Jökulsárlónið, á skerjunum við Stokksnes og við gönguleiðina fyrir Horn.
Fuglar eru stór þáttur í náttúru ríki Vatnajökuls sem endurspeglast í sívaxandi áhuga fuglaáhugamanna á svæðinu. Á vorin er fyrsti viðkomustaður farfugla á leið til Íslands á Suðausturlandi og hér safnast þeir saman á haustin og safna kröftum áður en þeir leggja aftur í langflug til hlýrri heimkynna. Á haustin og vorin má sjá álftir í hundraðatali í Lóni og stóra hópa gæsa í túnum og ökrum. Skúmurinn er einkennisfugl Suðausturlands og heldur hann mest á söndunum í Öræfum og Suðursveit. Mikið af lunda er í Ingólfshöfða á vorin og sumrin og hægt að komast í mikið návígi við hann. Mikið kríuvarp er í Óslandi og við Jökulsárlón.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


