Perlur

Hornafjörður
Hornafjörður
Mynd: Óðinn Eymundsson

Fjaran

Frá skriðjöklunum falla ótal jökulár og hafa með aurframburði myndað víðáttumikla sanda og sandstrendur sem hvergi eiga sinn líka. Sandrifin mynda samfellda fjöru meðfram strandlengjunni um 200 km leið og er aðeins rofin með hinum fjölmörgu jökulám sem ryðjast til hafsins. Þetta meðal annars gerir fjörurnar í ríki Vatnajökuls einstakar en gönguferð í  fjörunni á svörtum söndum með krafta jökulsins á aðra hönd og Atlantshafsins á hina er einstök upplifun.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica