Perlur

Vestrahorn
Vestrahorn
Vestrahorn. Mynd: Páll Jökull Pétursson

Stokksnes

Frá þjóðvegi 1, neðan Almannaskarðs liggur vegur til austurs með fjallsrótum Vestrahorns, allt austur á Stokksnes sem er sandleira, sem er stundum hulin vatni.  Nokkur klapparholt standa upp úr sandinum og ganga sum þeirra í sjó fram.  Á þessum slóðum má oft sjá seli flatmaga á klettum eða skerjum en einnig er einstakt að standa við klettana og upplifa kraftinn í Atlantshafinu, þegar brimið skellur á þeim. Frá Horni liggur gönguleið austur Hornsvíkina, fyrir Horn og áfram að Papósi.  Frá Hornsvík var útræði og þar má m.a. sjá minjar um gamla verstöð.  Umgjörðin við Vestrahorn er oft sveipuð dulúð og margir kvikmyndaframleiðendur hafa valið staðinn sem sviðsmynd.

Vegurinn út á Stokksnes var lagður 1953 en þá hófst vinna við að reisa ratsjárstöð USA hers á Stokksnesi sem tekin var í gagnið 1955. Þar störfuðu á bilinu 120-130 bandarískir varnarliðsmenn, hermenn en einnig óbreyttir borgarar og 10 Hornfirðingar.  Mannvirkin settu mikinn svip á Stokksnes en þar voru byggðir tveir stórir fjarskiptaskermar og tveir minni.  Einnig voru settir upp stórir hvítir kúlulaga geymar sem innihéldu ratsjárloftnet sem höfðu það hlutverk að fylgjast með land og lofthelgi Íslands. Mest af þessum mannvirkjum hefur nú verið rifið og í dag rekur Ratsjárstofnun þarna eftirlitsstöð þar sem þrír menn starfa.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica