Perlur
Skeiðarársandur
Skeiðarársandur er um 1000 km² að flatarmáli og er hann eitt stærsta aurasvæði landsins, markað nábýli við Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu. Sandurinn nær frá Fljótshverfi í Vestur-Skaftafellssýslu yfir í Öræfasveit í Austur-Skaftafellssýslu. Um hann renna margar jökulár og mest þeirra var Skeiðará.Brúin yfir hana er sú lengsta á landinu, 904 m og var vígð árið 1974. Lauk með því smíði brúa yfir jökulárnar á Skeiðarársandi sem fyrr flæmdust um sandinn, voru hinir mestu farartálmar og einangruðu Öræfasveitina öldum saman. Áður lögðu ferðalangar oft í mikla hættuför, þegar þeir fóru yfir jökulsporðana, ofan jökulánna, þegar leita þurfti annað eftir nauðsynjum. Einnig var farið yfir árnar á hestum. Allar þessar ferðir reyndu mjög á hesta og menn. Síðar var farið yfir óbrúaðar árnar á bílum snemma á vorin fyrir sumarleysingarnar.
Hrikaleg flóð geta myndast í jökulánum, sérstaklega við bráðnum jökulsins vegna eldgosa undir jökli, en þegar vatnið nær að lyfta jökulmassanum, hleypur það fram. Á Skeiðarársandi er að finna mörg jökulker en það eru dældir eftir ísjaka úr jökulhlaupum. Eitt slíkt varð eftir Grímsvatnagosið árið 1996 sem var gríðarstórt eða allt að 40.000 m³/sek. og skildi eftir sig gríðar stórar ísblokkir dreift um sandinn. Jökulker myndast þannig að ísinn grefur sig ofan í sandinn og þegar hann bráðnar verður eftir vatnsfyllt hola. Smátt og smátt sígur vatnið úr holunum. Jökulkerin á Skeiðarársandi bera vott um mikil eldsumbrot í Öræfajökli.
Framskrið eða hopun jöklanna hefur enn áhrif á jökulárnar. Skeiðarárjökull hefur hopað mjög og árið 2009 fann Skeiðará sér nýjan farveg og rennur nú að mestu í Gígjukvísl. Eftir stendur lengsta brú landsins og undir hana rennur nú einungis vatn úr Morsá, auk lækja úr giljum í landi Skaftafells. Mikil gróðurframvinda á sér stað á Skeiðarársandi og gefur þar m.a. að líta fallegar beinvaxnar birkiplöntur á stórum svæðum.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


