Perlur

Himnaríki á jörð (@Skaftafell)
Himnaríki á jörð/ Heaven on earth
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) [myndasafn]

Skaftafell

Skaftafell í Öræfasveit var friðlýst sem þjóðgarður árið 1967 og er frá árinu 2008 hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.

  Skaftafell er ein af fegurstu perlum Íslands og andstæður í náttúrufari miklar þar sem svartir sandar kallast á við hvítt jökulhvelið og gróðurvinjar mæta eyðisöndum.  Öræfin voru umlukin jökulám langt fram eftir 20 öldinni og setti einangrunin mark sitt á menningu og mannlíf en ávallt var gestrisni Öræfinga viðbrugðið og er enn. Náttúrufegurð, góð veðurskilyrði og úrval gönguleiða gera Skaftafell að kjöráfangastað þeirra sem vilja njóta útivistar í íslenskri náttúru. Þar er að finna fjölbreytta þjónustu við ferðamenn og víst er að enginn þeirra fer ósnortinn heim. 

Úrval gönguleiða er að finna í Skaftafelli.  Léttari og styttri leiðir eru að Svartafossi og  Skaftafellsjökli en lengri og meira krefjandi leiðir eru inn í Morsárdal, í Bæjarstaðarskóg eða á Kristínartinda.  Í Skaftafellsstofu er margvíslegur fróðleikur um mannlíf og náttúrufar í Öræfum í gegnum aldirnar.  Í Skaftafelli er stórt og velbúið tjaldsvæði, veitingasala upplýsingamiðstöð og þjóðgarðsverslun þar sem er að finna úrval korta og handbóka, ferðamannabóka og íslenskra minjagripa. Landverðir taka á móti gestum og veita þeim upplýsingar þjóðgarðinn, fræðslu um næsta nágrenni og bjóða upp á fræðslugöngur yfir sumartímann.  Einkarekin fyrirtæki eru með starfsstöðvar sínar í þjóðgarðinum og bjóða upp á skipulagðar jöklagöngur í mismunandi erfiðleikastigum, allt frá byrjendum til þeirra sem hyggjast ganga á Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands.

Þetta sem og milt veðurfar og gerir það að verkum að Skaftafell er mjög vinsæll áfangastaður innlendra sem erlendra ferðamanna sem koma í Ríki Vatnajökuls.  Gestastofan í Skaftafelli er opin allt árið

Sjá nánar um opnunartíma hér www.vatnajokulsthjodgardur.is



 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica