Perlur

Öræfajökull

Öræfajökull gengur suður úr Vatnajökli og frá honum falla fjölmargir skriðjöklar s.s. Skaftafellsjökull, Svínafellsjökull, Virkisjökull, Falljökull, Kvíárjökull og  Fjallsjökull en við hann er samnefnt jökullón, Fjallsárlón.  Hæsti tindur Öræfajökuls nefnist Hvannadalshnjúkur og er hæsti tindur Íslands.  Öræfajökull er eldkeila og árið 1362 varð mikið gos í jöklinum.  Gríðarlegar hamfarir urðu í Litla-Héraði og tugir bæja lögðust í eyði vegna flóða og gjóskufalls.  Litla-Hérað sem var blómleg sveit, fékk á sig ásýnd eyðimerkur og hefur síðan heitið Öræfi.

Aftur gaus Öræfajökull árið 1727 og stóð gosið í tæpt ár.  Tjón varð þó ekki eins mikið og í fyrra gosi.  Enn má sjá merki frá þessu gosi á Háöldu milli Sandfells og Hofs en þar er jökulker, sem hefur verið friðlýst. Sjá  nánar á www.vatnajokulsthjodgardur.is

Hvannadalshnjúkur

Hæsti tindur Öræfajökuls heitir Hvannadalshnjúkur og er 2.110 metrar á hæð. En þar sem tindurinn er hulinn snjó ræðst hæð raunar af snjóalögum og árstíma og er tindurinn hæstur að vori en lægri að hausti.  Vinsælar gönguleiðir liggja á Hvannadalshnjúk og þangað leggja fjölmargir leið sína, flestir að vorlagi eða fyrripart sumars.  Þegar líður á sumar verður jökullinn erfiðari yfirferðar, þegar snjór bráðnar og sprungur opnast.  Slíkt skapar hættur og lögð er áhersla á að enginn fari á tindinn nema í fylgd reyndra fjallamanna, hafi meðferðist allan nauðsynlegan öryggisbúnað og hugi vel að veðri áður en lagt er af stað.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica