Perlur

Lónsöræfi og Stafafellsfjöll

Í landi Stafafells og Brekku í Lóni, austan Vatnajökuls eru Lónsöræfi. Í Lónsöræfum er stórbrotin náttúra sem vert er að upplifa.  Einkennandi eru mikilfenglegar skriður úr litríku líparíti, andstæður  við fagrar gróðurvinjar sem þar eru inn á milli.  Litadýrðina í berginu má rekja til þess að þar er gömul megineldsstöð og í berginu er einnig að finna mikið af holufyllingum og fallegum kristöllum. Svæðið er sundurskorið af giljum og gljúfrum.  Algengt er að hreindýr sæki á svæðið.  Vegna sérstæðrar náttúru svæðisins voru Lónsöræfi friðlýst árið 1977 og er svæðið eitt af stærstu verndarsvæðum landsins.  

Lónsöræfi eru vinsælt göngusvæði og þykir bæði fagurt og áhugavert. Jeppaleið liggur frá Þórisdal í Lóni að Illakambi.  Aka þarf yfir Skyndidalsá sem getur verið varasöm og alls ekki fær nema vönum bílstjórum á stærri jeppum.  Hafa ber í huga að í rigningartíð og á sólríkum dögum getur áin vaxið mjög mikið á örskömmum tíma. Af Illakamb tekur við u.þ.b. 40 mínútna ganga m.a. niður snarbratta skriðu sem leið liggur í Múlaskála sem er skáli Ferðafélags Austur-Skaftafellsýslu www.gonguferdir.is Ferð í Lónsöræfin eru ómaksins verð og meira en það því náttúrufegurðin er einstök og svæðið sannkallað griðland göngumannsins fjarri öllum vélknúnum ökutækjum.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica