Höfn
Höfn í Hornafirði er líflegt, 1700 íbúa sjávarpláss á suðaustur strönd landsins. Sterk staða sjávarútgerðar eftir miðja öldina treysti grundvöll atvinnulífsins á Höfn, en mestur uppgangur varð á Höfn á 8. áratugnum þegar íbúum þar fjölgaði um 500 manns. Það má má rekja til bættra samgangna með tengingu hringvegarins og eflingu sjávarútvegsins á svæðinu. Hann efldist til muna á 7. áratugnum þegar humarveiðar hófust af miklum krafti og hefur Höfn verið meðal helstu útgerðarstaða landsins síðan. Höfnin í bænum er talin ein sú besta á Íslandi þegar inn í hana er komið, en að henni er erfið innsigling. Fara þarf inn um Hornafjarðarósinn þar sem eru þröngir og straumharðir álar og úti fyrir innsiglingunni eru grynningar sem verða ófærar í vondum veðrum. Innsiglingin hefur þó verið bætt á undanförnum árum með byggingu brimvarnargarða. Skemmtilegt er að fylgjast með bátum fara í gegn um ósinn frá Óslandi sem er friðlýst svæði innan bæjarins.
Byggðarlagið er ungt, en fyrstu íbúarnir settust þar að árið 1897. Það voru kaupmannshjónin Ottó og Valgerður Tulinus en þau fluttust þangað með verslun sína úr Papósi í Lóni. Þar með varð Höfn verslunarstaður og jafnframt eini þéttbýlisstaður sýslunnar. Bærinn er miðstöð verslunar í sveitarfélaginu Hornafirði og þar er öll almenn þjónusta í boði. Vegna þess hve langt er til næstu þéttbýliskjarna er þjónustustig bæjarins hátt miðað við stærð hans. Þar er til að mynda lággjaldaverslun, sundlaug, framhaldsskóli með heimavist, háskólasetur ofl. Haustið 2002 voru Nýheimar vígðir en þar er lögð áhersla á að styrkja atvinnulíf bæjarins með þróunarstarfi og aukinni menntun. Í Nýheimum eru til húsa Framhaldsskóli í Austur-Skaftafellsssýslu, bókasafn, háskólasetur, frumkvöðlasetur og upplýsingamiðstöð ferðamanna. Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur einnig aðsetur í Nýheimum á Höfn og hefur hún fjölþættu hlutverki að gegna. Stofnunin starfrækir m.a. listasafn, jöklasýningu, náttúrugripasafn, bókasafn, skjalasafn og byggðasafn bæjarins.
Höfn er í ríki Vatnajökuls og hefur það mikið að segja fyrir atvinnu- og mannlíf á svæðinu. Síðustu ár hefur þáttur ferðaþjónustu vaxið á Höfn og er þar margvísleg afþreying í boði fyrir ferðamenn. Allir ættu að finna gistingu við sitt hæfi, en í bænum er tjaldstæði, farfuglaheimili, gistiheimili og hótel. Í næsta nágrenni bjóða fjölmargir bæir upp á bændagistingu. Í sveitarfélaginu eru fjölmargar perlur sem eru aðdráttarafl fyrir ferðamenn og vísindamenn sem og kvikmyndataka hefur verið vinsæl í sýslunni vegna fjölbreytts jökullandslags. Samgöngur til og frá Höfn eru góðar og þá sérstaklega ef komið er úr suðri. Malbikaður vegur er alla leið á milli Hafnar og Reykjavíkur og er hann fær flesta daga ársins. Flug- og rútuáætlun er allt árið milli Hafnar og Reykjavíkur og þangað er flogið tvisvar á dag yfir sumartímann.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


