Perlur

Flott mynd í Óslandi
Við Óslandstjörn (úr myndasafni)
Við Óslandstjörn

Ósland

Ósland var eyja rétt innan við Hornafjarðarós en var gerð landföst um 1950. Vestri helmingur Óslands var friðlýstur sem fólkvangur 1982.  Þar hafa fundist steingerfingar, basaltafsteypur af trjám sem hafa lent undir hrauni. Fjölskrúðugt fuglalíf, m.a. mikið kríuvarp  er í Óslandi, og þar er vinsælt útivistarsvæði með göngustígum s.s. umhverfis Óslandstjörn.  Á hæsta punkti Óslands, Óslandshrauni, er glæsilegt minnismerki um sjómenn og sjósókn eftir Helga Gíslason myndhöggvara. Þaðan er gott útsýni yfir innsiglinguna til Hafnar sem var ein sú hættulegasta á landinu en hefur nú verið gerð örugg með öflugum sjóvarnargörðum. Einnig einstakt útsýni til fjalla og jökla, sem umlykja  Hornafjörð.

Hér má sjá göngukort


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica