Perlur
Hoffellsjökull
Hoffellsjökull er nyrstur þeirra jökla sem skríða austan frá hákolli Breiðubungu í Vatnajökli. Hann skríður niður á milli Gæsaheiðar og Hoffellsmúla í um 700 m hæð og gengur svo rúmlega 10 km leið niður á sléttuna, í rennu sem hann hefur grafið talsvert niður fyrir sjávarmál. Mesta þykkt Hoffellsjökuls er 560 metrar og úr honum renna Hornafjarðarfljót. Neðan frá þjóðvegi 1 blasir Hoffellsfjall við, hátt og hömrum girt, fremur gróðurlítið og víða skriðurunnið en á milli leynast gróðurvinjar. Þar hafa fundist ýmsar fágætar bergtegundir s.s.ópal, jaspis og silfurberg. Hluti af Hoffellsjörðinni er innan Vatnajökulsþjóðgarðs.
Akfært er allt að jökulöldunni við Hoffellsjöklul sem hefur eins og aðrir jöklar hopað mikið síðustu áratugina. Þaðan blasir mikilfenglegt jökullónið við með tignarlegum jökum. Við Geitafell, sem er austan við jökulinn er vinsæll áningarstaður með sætum og borðum úr gabbró. Þaðan eru gönguleiðir að Efstafellsgili, á Geitafellstind og að Hoffellsjökli. Aðgengi að Hoffellsjökli og Geitafelli er gott eftir greiðfærum vegslóða vestan Hoffells, en varast þarf árnar í leysingum eða eftir miklar rigningar. Sjá gönguleiðarkort af Nesjum
Jeppafær vegslóði liggur austan Hoffells inn Hoffellsdalinn, sem er 12 km. Eftir það tekur við 5 km fjallvegur og liggur hann upp úr dalsstafninum og vestur í Vesturdal sem er við rætur Vatnajökuls í um 750 metra hæð yfir sjávarmáli. Mögulegt er að ganga þaðan í Hoffellsnúpa og er áhugasömum er bent á að hafa samband við heimamenn, sem fúslega veita frekari leiðbeiningar. Heitt vatn hefur fundist í Hoffelli og þar eru heitar baðlaugar í náttúrulegu umhverfi undir klettaborgum úr gabbrói.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


