Perlur
Heinaberg
Landsvæðið milli Skálafellsjökuls og Fláajökuls sem er í daglegu tali nefnt Heinabergssvæðið, er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Fjölbreyttar jarðmyndanir, gróður og menningarminjar eru á svæðinu og myndar það áhugaverða landslagsheild sem vitnar um áhrif jökla á landslag og mannlíf. Gleggsta dæmi um fallvaltleika jökulvatnanna, þegar jöklarnir hopuðu, er að finna við gömlu brúna yfir Heinabergsvötn. En aðeins rúmu ári eftir að hún var tekin í notkun, breyttu vötnin enn um farveg og falla nú í Kolgrímu.
Hreindýr halda sig á svæðinu, til fjalla yfir sumarið en koma niður á láglendið þegar haustar. Svæðið er ein af perlum í Ríki Vatnajökuls og hentar einkar vel til gönguferða og hjólreiða.Sjá hér göngukort af Mýrum.
Vestasti hluti svæðisins nefnist Hjallanes, þar sem m.a. er að finna jökulsorfna kletta og gönguleið að jökli. Austan þess rennur áin Kolgríma, sem á upptök sín í þeim hluta Heinabergsjökuls sem nú kallast Skálafellsjökull og í hana renna nú Heinabergsvötn sem koma úr Heinabergslóni og áður runnu fram Heinabergsaura og gerðu mikinn usla á vesturhluta Mýrasveitar. Jökullinn sem klofnar um Hafrafell náði áður fyrr saman framan þess. Austan jökulsins er Geitakinn sem vitnar eins og Hafrafell um að geitfénaður hafi verið á svæðinu. Næst er Heinabergsdalur, um 10 km langur og í honum gefur að líta fallega fossa, gil og bergganga. Fjölbreyttur blómgróður og nokkurt kjarrlendi er á dalnum. Þegar jökulinn lokaði mynni dalsins, var í honum stöðuvatn er Dalvatn nefndist. Greina má flóðöldur er sýna vatnshæð þess. Þar sem dalurinn endar nefnist Vörp og þar fyrir innan er þverdalur er Vatnsdalur nefnist. Suðaustanvert við Heinabergsfjalllendið er Jökulfell. Samfara hopun jökla um aldamótin 1900 sást á fyrsta stein þess upp úr jökulbreranum. Undir Heinabergsfelli, er eyðibýlið Heinaberg, þar sem búið var til 1934. Norðan þess eru greinilegar jökulöldur sem komið hafa í ljós þegar jökullinn hopaði. Þar gefur einnig að líta hvalbök, grettistök sem og fallegar stuðlabergsmyndanir við Heina og í Miðfelli. Þegar svipast er um af Heinabergsfelli, má glöggt sjá hvernig Heinabergsvötnin hafa flæmst um og eytt gróðri.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


