Perlur

Haukafell
Haukafell

Haukafell

Frá árinu 1985 hefur Skógræktarfélag Austur Skaftafellssýslu plantað trjám í Haukafelli og er þar í dag gróskumikill nýskógur.  Jafnhliða dafnar villtur blóm- og trjágróður vel.  Ágætur vegur er í Haukafell, þar er vinsælt útivistarsvæði og skjólgott og velbúið tjaldsvæði.  Vinsælt er að fara í berjamó í Haukafelli og á síðari árum til sveppatínslu.  Merktar gönguleiðir með fræðsluskiltum eru frá þjónustuhúsi á tjaldsvæði.  Búið var í Haukafelli til ársins 1936.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica