Fyrirtæki

Lambhús
Lambhús

Lambhús

Lambleiksstaðir Mýrum

 

Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn) eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.Tjaldstæði liggur norðanvert við bæinn en þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar.

 

Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn)eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.

Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.

Í húsunum er eldhúskrókur og salerni en ekki sturta. Í eldhúskrók eru eldavélahellur, ísskápur, kaffikanna, leirtau og eldhúsáhöld. 

Tjaldstæðið liggur norðanvert við bæinn Lamleiksstaði á Mýrum, 30 km vestan við Höfn. Þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar. Áhersla er lögð á að gestir njóti náttúrufegurðar, friðsældar og fjölbreytts fuglalífs. Á tjaldstæðinu er þjónustuhús með 2 salernum, sturtu og uppþvottaaðstöðu. Grill er einnig til staðar. Auk þess er unnt að losa ferðaklósett.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Smáhýsi
Ferðaþjónusta
Gisting
Svefnpokapláss
Tjaldstæði


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica