Hótel Skaftafell
Fosshótel Skaftafell, Öræfum
Hótel Skaftafell er í Freysnesi í Öræfasveit. Í Öræfum er stórbrotin náttúra og stendur hótelið við rót Svínafellsjökuls. Fallegur veitingastaður með bar er á hótelinu. Á efri hæð hótelsins er góður funda- og ráðstefnusalur auk koníaksstofu. Skammt frá er bensínsala og tjaldstæði.
Hótel Skaftafell er í Freysnesi í Öræfasveit. Það er við hringveginn um
fjóra km. frá þjóðgarðinum í Skaftafelli og er því vel staðsett fyrir
ferðamenn. Í Öræfum er stórbrotin náttúra og stendur hótelið við rót
Svínafellsjökuls. Hótel Skaftafell er með 63 herbergi með baði. Fallegur
veitingastaður með bar er á hótelinu. Á efri hæð hótelsins er góður
funda- og ráðstefnusalur auk koníaksstofu. Skammt frá er bensínsala og
tjaldstæði.
Veitingastaðurinn tekur 90-100 manns í sæti og er honum skipt í tvennt.
Annað veitingarýmið er tilvalið fyrir stóra hópa á meðan hitt rýmið býður upp á
meiri ró og næði fyrir einstaklinga.
Matseðillinn er fjölbreytilegur og leggjum við mikið upp úr að hafa
heilsusamlegan mat á boðstólnum og ferskt hráefni úr næsta nágrenni. Á sumrin bjóðum við uppá heilsusamleg salöt, súpur og fiskihlaðborð.