Hótel Höfn
Hótel Höfn
er þriggja stjörnu hótel með 68 vel búnum herbergjum en gistiaðstaða er fyrir
132 manns.
Öll herbergin eru búin helstu nútímaþægindum, svo sem sjónvarpi, útvarpi,
síma, þráðlausri nettengingu og sér baði. Hótelið er vel staðsett í miðju
bæjarins og þaðan er glæsilegt útsýni til allra átta. Góður veitinga- og
fundasalur með bar er á efri hæð hótelsins og rúmar hann 140 manns.
Á neðri hæð Hótelsins er veitingastaðurinn Ósinn sem rúmar 60 manns. Þar
er fjölbreyttur humarmatseðill, fisk og kjötréttir, ásamt pizzum og léttum
réttum.