Fyrirtæki

Hali í Suðusveit
Hali í Suðusveit
Hali í Suðusveit

Hali Suðursveit

Gistiheimili

Á Hala í Suðursveit er boðið upp á gistingu allt árið um kring fyrir 45 manns í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Gisting er í tveimur húsum sem henta vel fyrir fjölskyldur og minni hópa. Hægt er fá uppábúin rúm eða svefnpokapláss. Morgunverður og aðrar veitingar eru í boði í Þórbergssetri. Yfir vetrartímann er hægt að leigja íbúð á Hala samkvæmt samkomulagi frá 1. október – 1. maí.
Merktar gönguleiðir og ratleikur þar sem verk Þórbergs Þórðarsonar koma við sögu eru í nánasta umhverfi.

 

  • Heimilisfang: Hali, 781 Suðursveit
  • Sími: 478 1073
  • Farsími: 867 2900
  • Heimasíða: www.hali.is
  • Opnunartími: Opið allt árið. Sérkjör yfir vetrartímann

Á Hala í Suðursveit er boðið upp á gistingu allt árið um kring fyrir 45 manns í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Gisting er í tveimur húsum sem henta vel fyrir fjölskyldur og minni hópa. Hægt er fá uppábúin rúm eða svefnpokapláss. Tvö góð sameiginleg baðherbergi eru í hvoru húsi, auk góðrar eldunaraðstöðu og þægilegrar setustofa. Einnig er gisting í nýju húsnæði í níu tveggja manna herbergjum með vaski. Morgunverður og aðrar veitingar eru í boði í Þórbergssetri. Yfir vetrartímann er hægt að leigja íbúð á Hala samkvæmt samkomulagi frá 1. október – 1. maí.

Veitingaaðstaða er í Þórbergssetri þar sem hægt er að fá morgunverð, kaffi, heimabakaðar kökur, ýmsa smárétti og kjötsúpu, en einnig kvöldverð þar sem matreiddar eru afurðir beint frá býlinu Hala. Merktar gönguleiðir og ratleikur þar sem verk Þórbergs Þórðarsonar koma við sögu eru í nánasta umhverfi. Hægt er að panta gönguferðir með leiðsögn. Sjá heimasíðu Þórbergsseturs. Sérkjör yfir vetrartímann. Fjarlægðir: Jökulsárlón 13 km., Skaftafell 75 km., Höfn 70 km.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Gistiheimili
Ferðaþjónusta bænda
Gisting
Íbúðagisting
Veitingasala dreifbýli


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica