Hólmur, gistiheimili
Hólmur, gistiheimili
Hólmur á Mýrum
Ferðaþjónustan Hólmi Mýrar, 781 Höfn
Ferðaþjónustan Hólmi býður upp á gistingu, fjöruferðir og er húsdýragarður á bænum. Gistingin er í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum.Í húsinu er eldunaraðstaða og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi. Boðið er upp á morgunverð á heimili gestgjafa og einnig kvöldverð ef pantað er fyrirfram.
Gisting
Í Hólmi er boðið upp á gistingu í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum. Innanhúss hefur verið sköpuð stemmning bóndabæjar frá árunum 1960-‘70 þar sem innréttingar og húsmunir eru frá þeim tíma. Í húsinu er eldunaraðstaða og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi. Boðið er upp á morgunverð á heimili gestgjafa og einnig kvöldverð ef pantað er fyrirfram. Margar góðar gönguleiðir eru í nágrenninu og fjölskrúðugt fuglalíf. Er við þjóðveg 1, 33 km. vestan við Höfn, sjá kort (pdf). Opið allt árið.
Fjöruferðir
Fjaran og fjallasýn: Ferðaþjónustan í Hólmi býður upp á skipulagðar stuttar kvöldferðir frá Hólmi útá fjörur ef óskað er eftir. Í ferðum þessum gefst fólki kostur á að kynnast veröld þeirri sem fjaran og nálægð sjávarins býður upp á.
Frá fjörunum er falleg sýn á fjallahring Hornafjarðar. Lagt er af stað frá Hólmi á kvöldin kl: 20:00 á sumrin. Ekið er út á fjörurnar og stoppað þar í um það bil klukkustund, þar geta farþegarnir gengið um í flæðarmálinu, skoðað Atlantshafið og notið fersks sjávarloftsins. Komið er til baka að Hólmi Kl: 21:30-22:00 Best er að bóka ferðirnar fyrirfram.
Lágmarksfjöldi farþega 2.
Húsadýragarðurinn í Hólmi
Húsdýragarður með algengum íslenskum húsdýrum ásamt mörgum öðrum.
Í garðinum má finna Sauðfé, hesta, kálfa, geitur, grís,ketti, ýmsar kanínutegundir, naggrísi, íslenskar hænur, dverghænur,lynghænur, fashana, ýmsar dúfnategundir, gæsir, og endur.
Mismikið er af tegundum eftir því hvaða árstími er. En þegar vorar kviknar líf í garðinum. Þá iðar allt af ungviðum af ýmsum gerðum.
Hjólastóla aðgengi er í garðinum.
Ef gist er á vetrartíma er frítt í húsdýragarðinn,
og gestir geta tekið þátt í að fóðra sauðfé og önnur dýr á bænum.
Opið allt árið.