Fyrirtæki

Smáhýsin fyrir neðan Nýja vatnstankinn
Smáhýsin fyrir neðan Nýja vatnstankinn

Náttból

Náttból ehf. býður upp á gistingu í 11 smáhýsum sem eru staðsett á tjaldstæðinu á Höfn í Hornafirði. Húsin eru 15,4 fermetrar að stærð og skiptist það í tvö rými. Annars vegar svefnrými með fjórum kojum þar sem er svefnpláss fyrir fjóra til sex gesti og hinsvegar fremra rými þar sem eru borð og stólar auk eldunarhellu, hraðsuðuketils og brauðrist. Lítil verönd er fyrir framan húsin sem snýr á móti síðdegis- og kvöldsól. Rafmagn er í húsunum en hreinlætisaðstaða og rennandi vatn er nýtt sameiginlega með tjaldsvæðinu.  Þar eru sturtur, salerni og þvottaaðstaða, sem og leiktæki fyrir börn og aðgangur að interneti.

  • Heimilisfang: Tjaldstæðinu Höfn
  • Sími: 478 1606
  • Fax: 478 1607
  • Heimasíða: www.campsite.is
  • Opnunartími: Frá 1. maí til 15. október.
Öll almenn þjónusta er í göngufæri sem og golfvöllur og sundlaug. Einnig er stutt í frekari afþreyingu líkt og góðar gönguleiðir, hestaleigur, ferðir á hálendi og jökla auk siglingar á Jökulsárlóni. Nánari upplýsingar um afþreyingu er í þjónustumiðstöð tjaldsvæðisins.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Ferðaþjónusta
Smáhýsi


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica