Stórkostleg náttúra
Vatnajökull, stærsti jökull utan heimskautasvæðanna liggur að baki byggðar á Suðausturlandi. Jökulhvelið ber við himininn ásamt háum skriðurunnum fjöllum. Tugir skriðjökla teygja sig niður á láglendið og frá þeim falla ótal jökulár sem hafa með aurframburði myndað víðáttumikla sanda og sandstrendur. Hægt er að komast niður í fjöru á nokkrum stöðum. Nálægð jökulsins er mikil og í aldanna rás hefur hann í senn verið ógnvaldur og lífgjafi íbúa Austur Skaftafellssýslu. Víða er gott aðgengi að skriðjöklunum og eftir vegi F 985 er hægt að komast upp á Vatnajökul, við Jöklasel. Jökullinn og helstu áhrifasvæði hans hafa verið friðlýst sem þjóðgarður, Vatnajökulsþjóðgarður. Það má því með sanni segja að ferðalangar sem leið eiga um Austur-Skaftafellssýslu séu komnir í ríki Vatnajökuls.
Verið velkomin í ríki Vatnajökuls!
![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og viðburðir]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)


