Veitingar
Veitingar
Matur og veitingar eru mikilvægur hluti af upplifun ferðalags en veitingastaðir svæðisins leggja metnað í að nota fyrsta flokks hráefni úr héraði.
Nokkrir veitingastaðir eru með opið yfir vetrartímann.
- Freysnesi í Öræfum. Söluskáli opinn alla daga nema laugardaga yfir vetrartímann. Opnunartími frá 1. nóvember til 31. mars er frá klukkan 11:00 til klukkan 22:00. Frá 1.apríl til 31. október er opið frá klukkan 9:00 til klukkan 23:00.
- Þórbergssetur í Suðursveit. Veitingasala er opin allt árið. Frá 1. október er opið milli klukkan 13:00 og 17:00 og utan hefðbundins opnunartíma ef óskað er. Veitingar eru í boði allan daga, einnig kvöldmatur ef pantað er með fyrirvara. Heimaafurðir beint frá býli og skemmtileg sveitastemmning.
- Veitingarhúsið Ósinn á Hótel Höfn býður uppá fjölbreytta veitingaþjónustu. Fjölbreyttur matseðill í boði s.s. Pizzur, létta rétti, humar og flottar steikur.
- Kaffi Hornið, veitingastaður er í fallegu bjálkahúsi við aðalgötuna á Höfn. Þar er boðið upp á fjölbreyttan og girnilegan matseðil. Þar finnur þú meðal annars súpur, samlokur, pasta, fiskrétti og kjötrétti. Opið allt árið og alla daga nema sunnudaga yfir vetrartímann, frá klukkan 11:30 - 22:00.
- Nýheimar, kaffi og matsölustaður. Opið alla virka daga yfir veturinn milli klukkan 8:30 og 16.00.
- Hafnarbúðin, skyndibitastaður er niður við höfnina og býður upp á fjölbreyttan matseðil, þar sem finna má hamborgara, breiðlokur, duggur, ýmsa smárétti og djúpsteiktan fisk. Einnig sælgæti, drykki, og fleira. Frá 1. september til 24. maí er opið alla daga vikunnar frá 9:00 til 22:30.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


