Veturinn
Norðurljós
Norðurljós
Norðurljós á Jökulsárlóni. Mynd: Þorvarður Árnason

Veturinn

Veturinn er ævintýri líkastur í ríki Vatnajökuls. Suðausturland er sannkölluð vetrarparadís, þótt það sé eitt snjóléttasta svæði landsins.  Hér er mjög gott aðgengi á jökul og stutt í snjóalög allt árið um kring.  Jökullinn er einstaklega tær og fallegur á veturna og skriðjöklarnir fá á sig undurfallegan bláan lit. Yfir veturinn halda hreindýrin sig mest á láglendi og selir í hundraðatali yfirtaka Jökulsárlónið. Fegurð norðurljósanna öðlast nýja merkingu í Ríki Vatnajökuls þegar að þau kallast á við jökulinn.  Hingað eru góðar flugsamgöngur og vegna þess hve svæðið er snjólétt eru vegsamgöngur einnig góðar.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica