Austur-Skaftafellssýsla
Vatnajökull, stærsti jökull utan heimskautasvæðanna liggur að baki byggðar á Suðausturlandi. Jökulhvelið ber við himininn ásamt háum skriðurunnum fjöllum. Tugir skriðjökla teygja sig niður á láglendið og frá þeim falla ótal jökulár sem hafa með aurframburði myndað víðáttumikla sanda og sandstrendur. Hægt er að komast niður í fjöru á nokkrum stöðum. Nálægð jökulsins er mikil og í aldanna rás hefur hann í senn verið ógnvaldur og lífgjafi íbúa Austur Skaftafellssýslu. Víða er gott aðgengi að skriðjöklunum og eftir vegi F 985 er hægt að komast upp á Vatnajökul, við Jöklasel. Jökullinn og helstu áhrifasvæði hans hafa verið friðlýst sem þjóðgarður, Vatnajökulsþjóðgarður. Það má því með sanni segja að ferðalangar sem leið eiga um Austur-Skaftafellssýslu séu komnir í ríkiVatnajökuls.
Hornafjörður er blómstrandi samfélag í ríki Vatnajökuls. Íbúar í sveitarfélaginu eru liðlega 2000, þar af búa um 1700 manns á Höfn í Hornafirði, sem er öflugur útgerðarbær. Fjölbreytt þjónusta er í boði á Höfn og er staðurinn þekktur fyrir humarinn enda sannkallaður höfuðstaður humarsins í norðri.
Auk stórkostlegrar náttúru og útsýnis sem á sér vart hliðstæðu er í Ríki Vatnajökuls að finna fjölbreytta þjónustu og afþreyingu fyrir ferðamenn s.s. hótel, bændagistingar, veitingahús, tjaldstæði, verslanir, sundlaugar, söfn og sýningar, gönguleiðir og golfvöll. Einnig jeppaferðir, sleðaferðir, fjórhjólaferðir, hestaferðir, gönguferðir á jökul, ísklifur, útsýnisflug, siglingu á Jökulsárlóni og er þá ekki allt upptalið. Ríki Vatnajökuls er því sannkölluð ferðamannaparadís og nær frá Lómagnúpi í vestri að Hvalnesi í austri. Á ferðalagi þínu um heimasíðuna eru örnefni og þjónusta í Ríki Vatnajökuls, jafnan listuð upp frá vestri til austurs.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


