Sýningar og söfn
Skaftafellsstofa
Í gestastofunni í Skaftafelli er mikill fróðleikur um náttúrufar, sögu, mannlíf og búsetu í Öræfum. Einnig er sýnt myndband um umbrotin í Vatnajökli árið 1996. Gestastofan er opin alla daga yfir sumartímann en á veturna er lokað um helgar.
Nánari upplýsingar um opnunartíma eru á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á tölvupóstfang skaftafell@vatnajokulsthjodgardur.is.og í síma 470 8300.
Þórbergssetur
Þórbergsseturá Hala í Suðursveit er menningarsetur reist til minningar um Þórberg Þórðarson rithöfund.
Í Þórbergssetri eru sýningar helgaðar sögu Suðursveitar og lífi og verkum Þórbergs Þórðarsonar. Þórbergssetur er opið allt árið. Á sumrin er opið frá 15.maí til 1.október kl 9:00 - 21:00. Á veturna er Þórbergssetur opið flesta daga frá kl. 12:00 - 16:00. Vinsamlega hafið samband ef um sérstakar heimsóknir er að ræða. Í Þórbergssetri er fjölbreytt menningarstarfsemi, safn, minjagripasala og veitingahús. Heimamenn eru ávallt reiðubúnir að ræða við gesti og veita fræðslu og upplýsingar um umhverfi, náttúru og mannlíf
Veitingar eru í boði allan daginn ef óskað er, einnig kvöldmatur. Panta þarf með fyrirvara á veturna. Heimaafurðir beint frá býli og skemmtileg sveitastemmning. Heimasíða: www.thorbergur.is
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 478-1078 og 867-2900
Netfang: torbergssetur@simnet.is
Gamlabúð/byggða- og náttúrugripasafn
Í Gömlubúð er að finna marga áhugaverða muni, nytjahluti og vinnuvélar frá liðinni tíð sem vert er að skoða og skyggnast þar með inn í heimilishald, félagslíf og atvinnuhætti frá síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta 20. aldar í Austur-Skaftafellssýslu. Á safninu er einnig að finna náttúrugripasafn sem fræðir um dýralíf í sýslunni. Þar er einnig sýnt myndbandið „Í jöklanna skjóli“ um atvinnuhætti í Skaftafellssýslum. Sjá upplýsingar um safniðhér. Byggðasafnið er við Hafnarbraut, vinstra megin þegar komið er inn í bæinn.
Sími: 478 1833. Utan opnunartíma er hægt að ná í tengilið í Menningarmiðstöðinni sími: 470-8050 eða farsími: 892–1869
Opið: 01.júní til 31.ágúst 13:00- 17:00 Hægt er að óska eftir heimsókn utan opnunartíma.
Allir eru velkomnir, frítt inn.
Pakkhús/sjóminjasafn
Pakkhúsið á Höfn er á skemmtilegum stað við höfnina. Þar er að finna sjóminjasafn og verbúð. Á veturna er hægt að leigja húsið fyrir ýmis tilefni líkt og sýningar og tónleika. Smáframleiðendur halda þar bænda- og fiskimarkað á hverjum laugardegi, svokallaðan heimamarkað. Á heimamarkaðinum er oft mikil stemmning. Menningarmiðstöð Hornafjarðar veitir nánari upplýsingar um útleigu á Pakkhúsinu. Sjá hér.
NýheimarNýheimar, þekkingarsetur er vettvangur skapandi samvinnu ólíkra aðila á sviði mennta, menningar, nýsköpunar og frumkvöðlastarfssemi. Fjölmargir aðilar eru með starfssemi sína í Nýheimum. Í húsinu er ráðstefnusalur fyrir allt að 120 manna ráðstefnur, þar er gott bókasafn, tölvur og þráðlaus nettenging. Veitingasala er í húsinu.Heimasíða Nýheima.
Jöklasýning
Jöklasýningin ÍS-land á Höfn er opin yfir sumartímann en hægt er að opna fyrir hópa yfir vetrartímann. Á sýningunni er m.a. hægt að sjá uppstoppað hreindýr, heyra ýmis konar fuglahljóð, ganga inn í jökulsprungu og íshelli, sjá James Bond á Jökulsárlóni, skoða margmiðlunarefni um jökla og njóta óviðjafnanlegs útsýnis af þaki hússins. Á sýningunni er margvísleg fræðsla um náttúruna á þessum slóðum og jöklafræði fyrir gesti með mismunandi undirbúningsþekkingu.
Um er að ræða afar metnaðarfulla sýningu sem ætlað er að uppfylla ákveðna eftirspurn eftir menningartengdri þjónustu. Hönnuður sýningarinnar er Björn G. Björnsson.
Merki Jöklasýningarinnar á Höfn, ískristallinn, er víða við þjóðveg 1 og bendir á staði þar sem sjá má áhugaverð ummerki jökulsins.
Sjáið meira um Jöklasýninguna hér www.is-land.is
Hafnarbraut 30, 780 Höfn í Hornafirði. Sími: 478-2665
Steinasafnið Huldusteinn
Hafnarbraut 11
780 Hornafjörður
Sími: 478-2240 Farsími: 866-2820
Opnunartími frá 14-21 alla daga, opnum utan auglýsts opnunartíma ef óskað er
Netfang: huldusteinn@simnet.is
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


