Funda og ráðstefnusalir

Staðsetningar

Nokkrir aðilar gefa sig út fyrir að þjónusta ráðstefnur og námskeið í ríki Vatnajökuls á Suð-Austurlandi.  Á öllum þessum stöðum er góð veitingarsala. Hægt er að taka á móti stórum og smáum hópum, allt að 120 manns.  Hægt er að kynna sér betur hvernig aðstöðu hver og einn býður upp á hér fyrir neðan. Fyrir stærri samkomur eða fundi er íþróttahúsið notað.



Hótel HöfnHótel Höfn

Hótel Höfn leggur mikla áherslu á að aðstaða ráðstefnugesta sé sú besta sem völ er á hverju sinni, bæði varðandi aðstöðu, tækni og veitingar.  Við getum tekið 10 - 100 manna ráðstefnur á Hótelinu.  Einnig er úrval fundasala í nágrenni hótelsins  og þannig getum við tekið  allt að 400 manna fundi.

Margir möguleikar eru á afþreyingu á svæðinu og eru ferðir á stærsta jökul Evrópu  mjög vinsælar sem og ferðir að Jökulsárlóni sem er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.

Kostur  þess að funda á Hótel Höfn er tvímælalaust  að vera utan höfuðborgarsvæðisins í kyrrð og ró, sem gefur ráðstefnugestum betri vinnufrið.

,,Við sníðum uppsetningu fundarsala og skipuleggjum daginn fyrir þig og þína gesti að ykkar þörfum og leggjum metnað okkar í að dagurinn verði ykkur bæði árangursríkur og skemmtilegur.“

Til að fá nánari upplýsingar sjá hotelhofn.is, sendu okkur tölvupóst á info@hotelhofn.is eða hringdu í síma 478-1240.

 



NýheimarNýheimar, ráðstefnusalur

Nýheimar,  þekkingarsetur er vettvangur skapandi samvinnu ólíkra aðila á sviði mennta, menningar, nýsköpunar og frumkvöðlastarfssemi.  Fjölmargir aðilar eru með starfssemi sína í Nýheimum.  Í húsinu er ráðstefnusalur fyrir allt að 120 manna ráðstefnur,  þar er gott bókasafn, tölvur og þráðlaus nettenging. Veitingasala er í húsinu. Sjá nánari upplýsingar hér.

Nýheimar | Litlubrú 2 | 780 Hornafirði | Sími 470 8050 | Fax 478 8051 | husverdir@hornafjordur.is



SmyrlabjörgHótel Smyrlabjörg

Á Smyrlabjörgum eru tveir funda og ráðstefnusalir.  Stærri salurinn getur tekið um 80 - 100 manns í sæti. Minni salurinn tekur 20 - 50 manns í sæti. Auk almenns búnaðar til fundarhalda eru píanó og harmonikka til staðar.  Salirnir henta einnig fyrir kóra, handavinnuhópa og aðra sem vilja hafa skemmtilegar vinnuhelgar, í rólegu umhverfi. Sjá nánari upplýsingar hér.

Smyrlabjörg í Suðursveit
781 Höfn í Hornafirði
Sími: 478 1074

smyrlabjorg@smyrlabjorg.is



ÞórbergsseturÞórbergssetur

Ráðstefnusalur fyrir allt að 60 manns er í Þórbergssetri. Veitingasalur og öll aðstaða til lengri dvalar.  Gisting á staðnum fyrir um 60 manns á Gistiheimili á  Hala og Gerði. Skemmtileg sýning og möguleikar á útiveru og leiðsögn heimamanna. Sjá nánari uppl. hér

Þórbergssetur Hala Suðursveit
781 Hornafjörður
Sími: 478-1078 / 867-2900
Netfang:thorbergssetur@thorbergssetur.is

 



FreysnesFosshótel Skaftafell

Á hótelinu er góð aðstaða til funda, námskeiðs- og ráðstefnuhalds. Ráðstefnusalurinn er á annarri hæð hótelsins og getur hýst allt að 80-100 manns fyrir ráðstefnur og einkasamkvæmi.
Sjá nánari upplýsingar hér.

Fosshótel Skaftafelli

Freysnesi - 785 Öræfi
Sími: 478 1945, Fax : 478 1846 

bokun@fosshotel.is



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica